147. löggjafarþing — 6. fundur,  26. sept. 2017.

frestun á fundum Alþingis.

114. mál
[18:49]
Horfa

forsætisráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir tillögu til þingsályktunar um samþykki til frestunar á fundum Alþingis samkvæmt 1. mgr. 23. gr. stjórnarskrárinnar.

Tillagan er svohljóðandi:

„Alþingi ályktar að veita samþykki til þess að fundum þingsins verði frestað frá 26. september 2017 eða síðar, ef nauðsyn krefur.“

Virðulegi forseti. Tillagan skýrir sig sjálf.