147. löggjafarþing — 7. fundur,  27. sept. 2017.

útlendingar.

113. mál
[00:10]
Horfa

Frsm. minni hluta allsh.- og menntmn. (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Þær breytingar voru ekki búnar að fara í gegnum neitt samráðsferli hér milli allra þingflokka og í vinnu þar sem við viljum sjá breytingar á þessum lögum verða gerðar í samræmi við það hvernig nýju útlendingalögin voru sett. Við stöndum auðvitað ekki að baki þessari tillögu hér, þannig að hv. þingmaður getur kannski best svarað því af hverju hún sé orðin svona takmörkuð núna.