um fundarstjórn.
Virðulegi forseti. Hv. þingmenn. Við forseti höfum rætt um 63. gr. þingskapa þar sem kom fram í útskýringum að venjulega eru almennar stjórnmálaumræður eða eldhúsdagsumræður að vori. Í fyrra voru þær 26. september, við undarlegar kringumstæður eins og núna. Þegar ég spurði hvaða flokkar hefðu átt þátt í ákvörðun um að taka ekki almennar stjórnmálaumræður á dagskrá þá kom það svar að enginn hefði beðið um þær. Það bað enginn um almennar stjórnmálaumræður, það var nóg að gera. Það er því miður ekki gild ástæða að vona að enginn segi neitt til þess að sleppa við að fara eftir þingsköpum. Ég býst við það sé hlutverk virðulegs forseta að tryggja að farið sé eftir þingsköpum. Mig langar því til þess að spyrja um hver næstu skref eru varðandi þessa grein þingskapa.