147. löggjafarþing — 7. fundur,  27. sept. 2017.

um fundarstjórn.

[00:33]
Horfa

Forseti (Unnur Brá Konráðsdóttir):

Eins og fram hefur komið þá hefur forseti litið svo á að samkomulag sé um þinglokin. Tveir flokkar hafa lýst því yfir að þeir standi ekki að því samkomulagi. Engu að síður var það ákveðið á fundi formanna í gær að ljúka þingstörfum í dag. Það var þannig að allir, eins og ég skildi niðurstöðuna, formenn flokkanna voru sammála því að hafa þann háttinn á.