siðareglur þingmanna.
Forseti vill þá enn fremur geta þess að alþingismenn skulu við upphaf þingsetu undirrita yfirlýsingu um að þeir hafi kynnt sér siðareglur fyrir alþingismenn, samþykktar með þingsályktun 16. mars 2016. Á borðum nýkjörinna þingmanna, sem ekki áttu hér fast sæti á liðnu þingi, liggur þingsályktunin um siðareglur og yfirlýsing til að staðfesta hana. Þegar hv. þingmenn hafa kynnt sér reglurnar eru þeir beðnir að afhenda undirritaða yfirlýsingu á þingfundaskrifstofu þess efnis að þeir hafi kynnt sér og undirritað siðareglurnar.