148. löggjafarþing — 1. fundur,  14. des. 2017.

tilkynning um stefnuræðu forsætisráðherra.

[16:35]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Stefnuræða forsætisráðherra fyrir hönd ríkisstjórnarinnar, samanber 62. gr. þingskapa, verður flutt í kvöld, og umræður um hana. Hefst umræðan kl. 19.30. Samkomulag er um fyrirkomulag umræðunnar. Umferðir verða þrjár, níu mínútur, fimm mínútur og fjórar mínútur, en forsætisráðherra hefur 16 mínútur til framsögu.