148. löggjafarþing — 2. fundur,  14. des. 2017.

stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana.

[22:09]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Góðir landsmenn. Hæstv. forsætisráðherra, Katrín Jakobsdóttir, sagði í stefnuræðu sinni að síðast en ekki síst snerist jafnrétti um jöfn tækifæri ólíkra stétta og að gera skattkerfið réttlátara óháð uppruna tekna. Flestar uppbætur, styrkir og aðrar greiðslur til öryrkja sem ætlað er að mæta sérstökum kostnaði, t.d. vegna hreyfihömlunar og lyfjakostnaðar, eru tekjuskattsskyldar. Þessi skattskylda á umræddar greiðslur veldur keðjuverkandi skerðingum á öðrum bótaflokkum, t.d. húsnæðisbótum, húsnæðisstuðningi, framfærsluuppbót og barnabótum. Skattur af þessum uppbótum og styrkjum er svipaður og framlög til stjórnmálaflokkanna og því óskiljanlegur í því samhengi.

Skatturinn og keðjuverkandi skerðingaráhrifin valda því að uppbætur og styrkir skila ekki tilgangi sínum, heldur valda jafnvel kostnaði fyrir öryrkjana. Í þessu samhengi eru t.d. dánarbætur sem skerða framfærsluuppbótina króna á móti krónu og leiða til þess að öryrkinn fær í raun engar dánarbætur þótt hann eigi fullan rétt á þeim. Ríkið réttir öryrkjanum dánarbætur vegna fráfalls maka með vinstri hendinni og tekur þær svo til baka með hægri hendinni.

Þetta er refsikerfi af verstu gerð. Hvernig samrýmist þetta mannréttindum og stjórnarskrá? Króna á móti krónu skerðing sem allir lofuðu fyrir kosningar að afnema er svo ekki á dagskrá ríkisstjórnarinnar eftir kosningar. Króna á móti krónu skerðingin er mannréttindabrot. 76. gr. stjórnarskrárinnar á að vernda öryrkjana.

Hæstv. forsætisráðherra, Katrín Jakobsdóttir, sagði í stefnuræðu sinni að ríkisstjórnin ætlaði að gera úttekt á tekjulægstu hópunum og ekki síst þeim börnum sem búa við fátækt. Börn búa við sára fátækt á Íslandi í dag og það þarf ekki enn eina úttektina eða fleiri nefndir til að skoða það, heldur sjá til þess strax að engin börn eða aðrir búi við sára fátækt.

Síðan þarf að sjá til þess í kjölfarið að enginn búi við fátækt í því ríka samfélagi sem við eigum á Íslandi.

Lífeyrir, tekjutrygging og heimilisuppbót var við upphaf staðgreiðslu árið 1988 án skatts og það var afgangur af persónuafslættinum upp í aðrar tekjur, t.d. lífeyrissjóðsgreiðslur. Spáið í það að þetta var hægt 1988 og á því vel að vera hægt í dag.

Tökum upp þrepaskiptan persónuafslátt þannig að ráðstöfunartekjur lífeyrisþega, þeirra tekjulægstu og millitekjufólks aukist frekar en að lækka lægra þrep tekjuskatts einstaklinga, eins og hæstv. forsætisráðherra vill. Það er ekki eðlilegt að einstaklingar á lífeyri og láglaunafólk séu með sama persónuafslátt og hátekjufólk.

Fjöldi öryrkja og eldri borgara á ekki fyrir mat, lyfjum eða læknisþjónustu. Spilling og græðgi sem felur í sér að við höfnum allri samúð og hjálpsemi og skilur börn og veikt fólk eftir í algjörri fátækt er aldrei réttlætanleg.

Ég skrifaði undir drengskaparheit að stjórnarskránni fyrr í dag eins og allir alþingismenn hafa gert og ég ætla mér að standa við heitið. Áður en við förum að koma á nýrri stjórnarskrá skulum við á Alþingi sameinast um að fara eftir núverandi stjórnarskrá með því að útrýma fátækt. — Takk fyrir.