fjárlög 2018.
Virðulegi forseti. Ég ætla nú ekki að endurtaka orðaskipti mín og hæstv. heilbrigðisráðherra frá því í morgun en ég undirstrika það aftur að 3–4% aukning, eins og hér er verið að horfa á, er engin stórsókn í einu eða neinu. Hér er engin björgun á ferð eða neitt svoleiðis eins og við ræddum fyrr í morgun. Ég vil halda því til haga. Þetta var engin talnaleikfimi, þetta voru tölur, þær tala sínu máli.
Mig langaði hins vegar að spyrja hæstv. heilbrigðisráðherra um afmarkað mál og það er varðandi sykurskattinn. Ég hef trú á að fjárhagslegir hvatar hafi áhrif á hegðun neytenda. Sykursýki er vaxandi vandi hér á landi. Mig langar að spyrja hæstv. heilbrigðisráðherra hvort hún sé til í að styðja tillögu, ef hún kemur hér fram, eða leggja hana sjálf fram, um álagningu sykurskatts við þessa umræðu.