148. löggjafarþing — 3. fundur,  15. des. 2017.

fjárlög 2018.

1. mál
[15:39]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V) (andsvar):

Herra forseti. Ég get að mörgu leyti verið sammála ýmsu sem kom fram í máli hæstv. samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra. Ég ætla ekki að tala um að hrópandi stefnuleysi sé í samgöngum hér á suðvesturhorninu en búið er að afgreiða eitt úrræði út af borðinu. Og ég var ekki endilega að segja að ég væri sammála vegtollum, ég vil bara fá kosti og galla. Það var það sem ég hef hrósað forvera hans í starfi, hv. þm. Jóni Gunnarssyni, fyrir, þ.e. að hann þorði að setja þetta á dagskrá til að vita hvað við, íbúar hér á suðvesturhorninu, færum á mis við ef ekki fengist aukið fjármagn í samgönguframkvæmdir.

Skilaboð þessarar stjórnar og þessara fjárlaga hvað varðar uppbyggingu samgöngumála hér á suðvesturhorninu finnst mér því vera þessi: Kannski ein gatnamót, tvö hringtorg — jú, fínt, takk, en það er ekki mikið meira sem verður farið í. Það finnst mér miður. Ég hefði viljað heyra og sjá Framsóknarflokkinn tala skýrt í þessum efnum og segja okkur hver sé hans sýn á uppbyggingu hér á suðvesturhorninu því að ég sé þess ekki skýr merki í fjárlagafrumvarpinu.

Ég hefði líka gjarnan viljað fá það skýrt fram hjá samgönguráðherra sem hann sagði á fundinum góða í Norræna húsinu þar sem allir flokkar sögðu að standa ætti við kolefnisgjöldin og horfa til lengri tíma. Mér finnst eins og málflutningur hæstv. ráðherra hafi eitthvað breyst síðan þá. Við erum að tala um græna skatta. Við þurfum að tala um græna hvata og vera óhrædd við það, þótt það ruggi einhverjum báti. Við þurfum að taka ákvarðanir og afstöðu í þessum málum. Það þýðir ekki lengur að humma þetta fram af sér. Nei er líka svar, alveg eins og já er svar. Ég lýsi eftir stefnu og framtíðarsýn samgönguráðherra í þessu. Þetta kom mjög skýrt fram í ræðu hæstv. umhverfisráðherra hér áðan. (Forseti hringir.) Hann var mjög skýr í afstöðu sinni. Ég óska eftir álíka skýrri afstöðu af hálfu samgönguráðherra.