148. löggjafarþing — 3. fundur,  15. des. 2017.

fjárlög 2018.

1. mál
[18:46]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf):

Herra forseti. Tilgangur komu minnar hingað í ræðustól í kvöld er að spyrja hæstv. dómsmálaráðherra hvernig hún sjái fyrir sér að tryggja öryggi borgara landsins miðað við það fjárframlag sem ætlað er til löggæslu í fjárlögum ríkisstjórnarinnar. Í kaflanum um löggæslu segir, með leyfi forseta:

„Markmið í málaflokknum eru:

1. Besta mögulega þjónustustig.

2. Hæsta mögulega öryggisstig.

3. Traust og heiðarleg lögregla.“

Í töflu þeirri sem fylgir með á þessari blaðsíðu er ekki að finna neitt um fjölgun lögreglumanna, ekki eitt aukatekið orð.

Í fjárlagafrumvarpinu segir að tímabundið 400 millj. kr. framlag til eflingar lögreglu sem veitt var af Alþingi til fjárlaga yfirstandandi árs sé gert varanlegt. Er það vel. En þetta er nú bara það sama og hefur verið undanfarin ár.

Vissulega ætlar ríkisstjórnin sér að leggja inn 298 millj. kr. framlag til innleiðingar aðgerðaáætlunar um úrbætur í meðferð kynferðisbrota en það hvernig þetta framlag skiptist vekur athygli. Það skiptist í 178 milljónir til að styrkja innviði lögreglu á sviði rannsókna kynferðisofbeldis og öllum þeim þáttum sem lúta að málsmeðferð þeirra. 40 milljónir tímabundið framlag til uppfærslu rannsóknarhugbúnaðar, upplýsinga- og gæðastaðla lögreglu og 80 milljónir til uppbyggingar upplýsingatæknikerfis fyrir réttarvörslukerfið.

Herra forseti. Það er alveg ljóst að þetta mun ekki bæta það ófremdarástand sem hæstv. dómsmálaráðherra ætti að vera fullkunnugt um að ríkir í löggæslumálum landsins. Ríkislögreglustjóri skilaði fjárlaganefnd umsögn sinni vorið 2017 vegna fjármálaáætlunar þáverandi ríkisstjórnar, sem hæstv. dómsmálaráðherra var einnig aðili að, og þar var ástandið dregið upp og alvarleiki þess fyrir öryggismál þjóðarinnar.

Flokkur hæstv. dómsmálaráðherra hefur haldið um keflið í umræddu ráðuneyti frá árinu 2013 og er það mat formanns Landssambands lögreglumanna, ef marka má orð hans, að Sjálfstæðisflokkurinn hafi lagt löggæslu á Íslandi í rúst.

Í umsögn ríkislögreglustjóra frá síðastliðnu vori segir, með leyfi forseta:

„Við skoðun á tillögu til þingsályktunar um fjármálaáætlun fyrir árin 2018–2022 verður ekki séð að fjárveitingar til lögreglu aukist umfram það sem hún hefur þegar fengið í fjárlögum 2017. Eingöngu sé um það að ræða að tímabundin 400 millj. kr. fjárveiting ársins 2017 verður gerð varanleg.“

Þetta er, herra forseti, nákvæmlega það sama og er að gerast hér í þessu fjárlagafrumvarpi, 400 milljónirnar verða varanlegar og ekkert annað.

Þá bendir ríkislögreglustjóri á að í áfangaskýrslu innanríkisráðherra um störf nefndar um grundvallarskilgreiningar löggæslu á Íslandi sem lögð var fyrir þingið á 141. löggjafarþingi var sérstaklega litið til mannaflaþarfar. Niðurstaðan var að lögreglumenn þurfi að lágmarki að vera 860 eða 200 fleiri en nú eru. Tvö hundruð fleiri.

Auk þess var áætlaður kostnaður við þá fjölgun og nauðsynlega búnaðareflingu tiltekinn.

Í erindi ríkislögreglustjóra segir að enn vanti verulega á fjölgun lögreglumanna og er þar talað um að áætlaður kostnaður við að ná sama fjölda lögreglumanna og var 2007, eða fyrir heilum áratug síðan, sé um 1 milljarður kr. Til þess að ná þeim markmiðum sem sett voru um að þeir verði 860 eins og þarf í dag miðað við fólksfjölda og umtalsverða fjölgun ferðamanna sem og hælisleitenda er nauðsynleg fjárveiting til þessara mála 3 milljarðar kr. Það er ekki gert ráð fyrir neinum fjárveitingum í þetta í þessu fjárlagafrumvarpi.

Lögreglumenn eru allt of fáir til að lögreglan geti sinnt þjónustu- og öryggishlutverki sínu með fullnægjandi hætti. Því spyr ég hæstv. dómsmálaráðherra hvernig hún hyggist tryggja öryggi borgaranna og velferð lögreglumanna í þessum mikilvægu störfum fyrir borgara landsins fyrst ekki er gert ráð fyrir neinum fjárveitingum til þessa í fjárlögum.