breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2018.
Herra forseti. Ég þakka fyrir umræðurnar hingað til. Það hefur verið afskaplega gaman og gagnlegt að hlusta á hv. þingmenn Þorstein Sæmundsson, Þorstein Víglundsson, Oddnýju G. Harðardóttur og hæstv. fjármálaráðherra í óvenjulega málefnalegum umræðum um svokallaðan bandorm. Þetta hefur glatt mig mjög.
Mikið hefur verið rætt um almannatryggingakerfið. Það er mjög eðlilegt vegna þess að það er eitt af því sem skiptir hvað mestu máli í hinum svokallaða bandormi að þessu sinni. Ýmislegt mætti líka segja um fjármagnstekjuskattinn og fyrirætlaðar breytingar á honum sem eru, að sögn hæstv. fjármálaráðherra, ætlaðar til að jafna út skatthlutfallið á fjármagnstekjum versus launatekjum. Ég er afar efins um að sú verði raunin vegna þess að stærðfræðin virkar hreinlega ekki þannig, talan þyrfti að vera ögn hærri.
Mig langar þó fyrst og fremst að skipta svolítið um gír og fjalla um umhverfishliðina á þessu. Það er yfirlýst markmið ríkisstjórnarinnar og flestra flokka á þinginu að reyna að vernda umhverfið með einum eða öðrum hætti. Markmiðið er kannski ekki síst að reyna að minnka losun gróðurhúsalofttegunda.
Þegar ég skoða fyrirætlanir ríkisstjórnarinnar með þessu frumvarpi verður mér hugsað til orða breska ljóðskáldsins Paul Kingsnorth sem spurði hvenær það hefði breyst að markmiðið með umhverfisvernd væri að vernda umhverfið í stað þess að vernda bara lífsgæði og lífsstíl manna. Nú horfum við fram á það að 10.000 bílar með rafmagni og 10.000 tengiltvinnbílar fái þessa virðisaukaskattsívilnun sem hefur verið til staðar. Rökin fyrir því eru fyrst og fremst þau að það vanti að byggja upp innviði og að forsendur skapist til að reka innviðina þegar heildarmagn bíla sem nýta þá sé komið yfir 5%. Þessi rök get ég alveg fullkomlega keypt og samþykkt og allt það.
Vandinn er líka annar. Rafbílar og tengiltvinnbílar eru enn sem komið er mun dýrari en aðrir bílar og þá kannski ekki síst bensínbílar sem eru mjög mengandi. Koltvísýringslosun vegna samgangna hefur aukist töluvert mikið á undanförnum árum; var 17,8% árið 1990, samanborið við 22,7% árið 2007 og hefur hækkað enn meira síðan. Heildarmagn koltvísýringslosunar hefur jafnframt hækkað töluvert mikið á þessum tíma. Við horfum fram á mjög alvarlega stöðu. Það þarf ekkert að rekja það enn einu sinni hér hversu alvarlegar afleiðingar það getur haft ef við förum yfir þennan vendipunkt þar sem mjög snöggar loftslagsbreytingar munu eiga sér stað; ekki er einu sinni ljóst hvort við höfum í raun farið yfir þann punkt nú þegar en áhrifin séu ekki fullkomlega komin í ljós.
Ég álít að það sé í fyrsta lagi alveg ótrúlega gott að ríkisstjórnin leggi það til að framlengja þetta til ársins 2020. Það var það sem Píratar fóru fram á í umræðunni um þetta í fyrra og var þá ekki orðið við því, en nú er það gert. Það skapar ákveðna vissu hjá innflytjendum bifreiða, sem nýta þessa endurnýjanlegu orkugjafa, og viðskiptavinum, sem hyggjast skipta út alla vega yfir þetta tímabil.
Það náðist líka góð breyting í efnahags- og viðskiptanefnd í fyrra, að minni tillögu, þegar M3-flokki bifreiða var bætt inn í þetta sem gerir að verkum að strætisvagnar og hópferðabifreiðar af ákveðinni stærð komast inn í þennan virðisaukaskattsafslátt; það hefur áhrif varðandi strætó og vonandi fyrirtæki sem eru í rekstri ferðamannabifreiða, túristabifreiða svokallaðra.
Engu að síður stingur þessi tala, 10.000 bifreiðar, mig svolítið mikið vegna þess að í þessu felst ákveðið metnaðarleysi gagnvart því heildræna markmiði að minnka losun gróðurhúsalofttegunda. Innviðirnir skipta miklu máli. Við þurfum að byggja þá upp og komast yfir þennan punkt, einhvers staðar í kringum 5%. En þá er ekki nema hálfur sigurinn unninn. Það er nefnilega svo að 8,8% bifreiða draga væntanlega ekki úr nema upp á 8,8% og í raun töluvert minna þar sem tengiltvinnbílar skila líka frá sér koltvísýringi af þessari heild sem hefur farið vaxandi ár frá ári í langan tíma. Þessi tala er náttúrlega valin af handahófi. Þetta er falleg stór og rúnnuð tala, en velja hefði mátt aðra tölu. Kannski hefði mátt miða við 10% allra bifreiða, kannski mætti miða við 12% eða 25 þús. bíla eða kannski mætti velja bara einhverja allt aðra tölu. Talan kemur, að því ég best veit, úr orkuskiptaáætlun sem var samþykkt í vor. Ég kvartaði yfir því á þeim tíma að hún væri svolítið metnaðarlaus. Ég geri það enn og aftur. Það er metnaðarleysi að binda okkur við 10 þús. bifreiðar af hverri tegund. Við ættum frekar að opna á þetta, segja: Það skiptir ekki máli hvort um er að ræða rafmagns- eða tengiltvinnbifreiðar, heildarmagnið ætti að vera töluvert meira. Kannski mættum við miða við 30 eða 40 þús. bifreiðar. Þá erum við komin yfir 25% mörkin með þessari breytingu. Þá erum við farin að höggva virkilega vel í þessa heildrænu breytingu. Á þeim tíma sem þetta stendur yfir, til 2020, koma rafmagnsbifreiðar vonandi til með að lækka meira í verði. Kannski er stærsti áhrifaþátturinn þar aðgengi að litíni á heimsvísu og reyndar öðrum efnum, svo sem indíni og öðru sem er nauðsynlegt við framleiðslu rafhlaðna. Ég vona líka að við sjáum miklar framfarir í efnafræði rafhlöðugerðar á næstu árum. Ýmislegt bendir til þess að plastrafhlöður og fleira geti komið í stað litínrafhlaðna og þar af leiðandi dragi úr þörf okkar fyrir efni sem er ekki til í óendanlegum mæli í heiminum. Litínaðgengi kemur til með að verða stór kostnaðarþáttur sem og hreinlega framleiðslugeta, en hún er öll að koma til.
Ég vil helst kvarta yfir því að við gætum verið töluvert metnaðarfyllri í þessu. Ég mundi vilja leggja það til að þessi tala yrði tekin til endurskoðunar og jafnvel hækkuð töluvert mikið í meðförum nefndarinnar. Ef ekki kemur breytingartillaga frá efnahags- og viðskiptanefnd þá hefði ég gaman af því að leggja fram slíka breytingartillögu sjálfur og mundi óska eftir stuðningi hv. þingmanna við slíka tillögu.
Að öðru sem er samt nátengt. Það er þessi breytingartillaga um að við breytum kostnaði á kolefnislosunarrétti úr 968 kr. í litlar 627 kr. Rökin sem eru færð fyrir því eru þau að þarna sé verið að fylgja miðgildi markaðsverðs í Evrópu. Það eru kannski ágætisrök að einhverju leyti vegna þess að þá erum við í raun að bjóða vöru inn á markað á verði sem er líklegt að varan seljist á. Ef um eðlilegan markað væri að ræða, þar sem töluvert framboð væri en kannski minni eftirspurn, þá væri þetta mjög lógískt. En það er ekki tilfellið. Við erum að tala um losunarréttindi á koltvísýringi sem mjög takmarkað framboð er af. Þetta er þar af leiðandi seljendamarkaður. Íslenska ríkið sem seljandi hefur þá töluvert meira svigrúm til þess að ráða verðinu. Það gefur auga leið að hugsunin með þessum koltvísýringslosunarrétti, þegar þetta kom upp á sínum tíma í samhengi við Kyoto-sáttmálann og síðari ætlanir um að minnka koltvísýringslosun, var að skapa efnahagslega hvata fyrir fyrirtæki til þess að losa ekki koltvísýring. Markmiðið var ekki að afla ríkissjóði tekna. Það er hliðarafurð sem við að vísu njótum góðs af. En markmiðið er að reyna að letja fyrirtæki til að losa koltvísýring.
Ég spyr: Er ekki lógískt að halda verðinu háu vegna þess að þetta er seljendamarkaður? Við munum ná að selja þessar heimildir vegna þess að eftirspurnin er hreinlega svo mikil. En það er af hinu góða ef hægt er, með því að hafa verðið aðeins hærra en miðgildi verðs á Evrópumarkaði, að letja fyrirtækin í því að losa koltvísýring; með því að láta það sneiða meira í hag þeirra að stunda þá losun sem þau gera og skapa um leið efnahagslegan grundvöll til að þau leggi meira fé í mengunarvarnir sem komi í veg fyrir losun á koltvísýringi og öðrum gróðurhúsalofttegundum eða hreinlega bindi þær við framleiðslustað. Ef eitthvað er þá ættum við að vera að hækka þessa tölu, ekki lækka hana. Það er alla vega mitt litla álit á þessu.
Ég ætla ekki að sinni að fara nánar út í önnur atriði sem koma fram í þessu frumvarpi. Það er auðvitað margt sem á eftir að koma í ljós í meðförum þingnefnda í framhaldinu og kannski ekki síst hvað varðar almannatryggingarnar og vonandi fjármagnstekjuskattinn. En að þessum umhverfispistli loknum ætla ég bara að segja gott í bili.