útlendingar.
Herra forseti. Ég verð að segja að ég fagna þessu frumvarpi hæstv. dómsmálaráðherra enda er algerlega ótækt að iðnnám hafi fallið með þessum klaufalega hætti úr lögum um útlendinga. En ég verð að sama skapi að taka undir orð hv. þm. Andrésar Inga Jónssonar þess efnis að það vekur furðu að á ekki lengri tíma en tæpum 12 mánuðum sé búið að gera fjórar breytingar á lögum um útlendinga og sú fimmta í bígerð og endurskoðun. Og síðan á þverpólitísk nefnd að leggjast yfir þennan lagabálk. Það ber þess merki að það hafi verið svolítill hraði í vinnunni þegar svo mikið þarf að laga eftir á.
Ég verð líka að lýsa yfir furðu á því að dómsmálaráðherra telji eðlilegt að það sé á ábyrgð félagasamtaka úti í bæ að vakta löggjafann. Það eru 63 þingmenn sem og heilt ráðuneyti sem fara með það verk, þessi löggjafarsamkoma sem á að sjá um að allt fari vel fram.
Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra hvort ekki sé tilefni til að gera frekari breytingar á frumvarpinu, þ.e. að þarna sé einnig gert ráð fyrir að þeir sem eru á námsmannaleyfi geti fengið hér ótímabundið dvalarleyfi. Svo er ekki í dag. Ótímabundið dvalarleyfi er í ákveðnum flokkum en það hefur verið undanskilið harkalega þarna, sem og að þeir sem eru hér í námi, sem ekki eru í doktorsnámi, og eignast börn þurfi ekki að senda börnin sín frá sér á meðan þeir klára nám sitt.