útlendingar.
Virðulegur forseti. Ég kannast nú ekki við að hafa vísað til frjálsra félagasamtaka um vöktun á þessari löggjöf eða annarri. Það er sjálfsagt að borgararnir komi ábendingum sínum á framfæri þegar þeir telja löggjöf ekki vera í samræmi við hagsmuni borgaranna. Það hvílir engin skylda á mönnum að gera það. Skyldan er að sjálfsögðu á löggjafanum að gera það. Þessi löggjöf var samin af nefnd sem skipuð var fulltrúum úr öllum flokkum. Menn geta kannski velt því fyrir sér hvort eðlilegt eða heppilegt sé að slíkri nefnd sé falið það viðamikla verkefni að semja nýja löggjöf frá grunni með þessum hætti, hvort vinnubrögðin í slíkum nefndum séu heppileg til þess að menn fái nógu mikla yfirsýn yfir málaflokkinn og mikilvæg lagatæknileg atriði sem huga þarf að. Ég get ekki áréttað það nægilega oft að það þarf að vanda til samningar lagafrumvarpa. Stundum getur það tekið tíma. Í þessum sal hefur stundum verið mikil óþreyja eftir lagafrumvörpum og lagabreytingum. Menn hafa ekki getað unnt öðrum þess að fá nægilegan tíma til þess að liggja yfir málum. Það verða menn að hafa í huga.
Menn geta ekki hangið endalaust yfir málum. Það þarf að afgreiða þau á einhverjum tímapunkti. Þá þurfa menn auðvitað að átta sig á því að það er ósanngjarnt annað en gera ráð fyrir því að lög taki breytingum ef upp koma einhver eða orðalag er óskýrt og annað. Ég tek sem dæmi málið varðandi iðnnemana, það er eina málið sem komið hefur upp frá því að þessi lög tóku gildi. Það verður að hafa það í huga í samhengi við raunveruleikann að það er ekki mál sem ber oft upp í lagaframkvæmd.