148. löggjafarþing — 4. fundur,  16. des. 2017.

dómstólar o.fl.

8. mál
[14:02]
Horfa

dómsmálaráðherra (Sigríður Á. Andersen) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Nú held ég að hv. þingmaður hafi eitthvað misskilið inntak þessa frumvarps. Hér er fjallað um heimild til þess að setja tímabundið dómara við Hæstarétt til að unnt sé á sem skemmstum tíma að ljúka þeim einkamálum sem enn verður ólokið eftir næstu áramót í Hæstarétti. Sá ráðherra sem hér stendur er ekki vanhæf til að setja þá dómara að tillögu Hæstaréttar. Ég átta mig ekki alveg á í hvað hv. þingmaður er að vísa. Svona er þetta. Þetta varðar setningu hæstaréttardómara í forföllum eða vegna námsleyfa. Svo er það reyndar þannig að dómstólasýslan, svo því sé haldið til haga, tekur auðvitað til starfa um næstu áramót sem falið er það hlutverk til að mynda að veita leyfi hæstaréttardómara. Hingað til hefur það verið á hendi ráðherra.