148. löggjafarþing — 4. fundur,  16. des. 2017.

dómstólar o.fl.

8. mál
[14:04]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P) (andsvar):

Herra forseti. Ég óska þess í fyrsta lagi að spyrja hæstv. ráðherra, í tilefni þessarar lagasetningar, hvort Landsréttur, sem taka á til starfa 1. janúar 2018, sé fullfjármagnaður. Ég spyr að sjálfsögðu í því samhengi að við ræðum hér fjárlögin á sama tíma. Mér skilst að það vanti 100 milljónir upp á. Mig langar að athuga hvort ráðherra geti tekið undir þá fullyrðingu mína að það vanti 100 milljónir upp á fjármögnun Landsréttar.

Þar að auki hefur mér skilist að upplýsingakerfi réttarvörslukerfisins sé lykilatriði í því að koma Landsrétti vel af stað. Mig langar að spyrja hvort til standi að koma því í loftið einhvern tíma á næsta ári eða hvort það verði bara einhvern tíma seinna.

Að lokum, svo að ég haldi mig við þrjár spurningar í fyrra andsvari, langar mig að spyrja varðandi dómstólasýsluna, sem taka á við 1. janúar, hvers vegna stefnumótun stofnunarinnar liggur ekki fyrir, samanber aðgerð II á blaðsíðu 188 í fjárlagafrumvarpinu.

Spurningarnar eru þrjár. Er Landsréttur fullfjármagnaður? Mun upplýsingakerfið verða tilbúið á næsta ári svo að það megi nýtast sem best á þessu nýja dómstigi? Hvers vegna liggur stefnumótun dómstólasýslunnar ekki fyrir?