148. löggjafarþing — 4. fundur,  16. des. 2017.

dómstólar o.fl.

8. mál
[14:17]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Það er ekki svo að þess væri óskað að hæstv. utanríkisráðherra kæmi fram og lýsti afstöðu sinni til einstakra umsækjenda. Það er einfaldlega verið að horfa á vinnubrögð við ákvörðun um Landsrétt, vinnubrögð við skipun dómara í Landsrétt, vinnubrögð við skipun dómara í framhaldinu við héraðsdómstólana á Íslandi, vegna þess að það er alveg ljóst að álagið á héraðsdómstóla nú þegar er umtalsvert. Ég verð að lýsa furðu minni og miklum áhyggjum yfir þeim vinnubrögðum sem eru augljós við þetta allt saman þegar ég sem nýr þingmaður í ræðustóli þarf að upplýsa settan dómsmálaráðherra í þessu máli um að andmælaréttur umsækjenda við niðurstöðu hæfisnefndar sé til 20. desember næstkomandi og frá 20. desember til 30. desember eigi að fara fram vinna við að ákveða hverjir verði skipaðir dómarar við héraðsdómstóla á Íslandi.

Inn í þennan tíma koma bæði frídagar sökum helga sem og jól. Því spyr ég aftur: Er ásættanlegt að settur dómsmálaráðherra viti ekki hvort héraðsdómstólar á Íslandi tæmast um áramót eða hvort þeirri vinnu verði lokið? Þarna undir eru fjölmörg mál þar sem málsaðilar og lögmenn hafa ekki hugmynd um hvaða dómari tekur við málunum um áramót. Þannig er staðan. Þetta er í boði dómsmálaráðherra og setts dómsmálaráðherra.