148. löggjafarþing — 4. fundur,  16. des. 2017.

dómstólar o.fl.

8. mál
[14:22]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég átta mig á því að settur dómsmálaráðherra vegna þessa máls áttar sig engan veginn á þeirri stöðu sem er uppi. Staðan er einfaldlega sú að sjö héraðsdómarar við héraðsdómstóla landsins voru skipaðir dómarar við Landsrétt. Það er ástæðan fyrir því að héraðsdómstólarnir eru að tæmast nú um áramótin. Þá er það einnig staðan að einhverjir dómarar eru að hætta störfum sökum aldurs og annars og þess vegna er slík staða uppi á Íslandi í dag, í íslensku réttarkerfi, að héraðsdómstólarnir verða því miður afskaplega fáliðaðir um áramót. Það er ekki á ábyrgð þingmannsins sem hér stendur að Sjálfstæðisflokkurinn skuli því miður vera þannig mannaður að hæstv. dómsmálaráðherra er vanhæf til þess að setja héraðsdómara. Það er algerlega vegna hennar eigin vinnubragða að svo er komið. Það er ekki hægt að skamma þingmanninn fyrir það. Sá sem er settur dómsmálaráðherra í þessu verkefni verður auðvitað að þekkja það verkefni sem honum er falið og vita eitthvað um það sem þar er á seyði, vita eitthvað um það hvernig ástandið er og, svo maður taki svolítið frakkt til orða, verður keyra málið áfram. Annars verður sú staða uppi um áramótin sem er öllum kunn sem starfa í dómstólunum, bæði lögmönnum og aðilum og dómurum, að enginn veit hvernig þetta verður um áramót. Það veit enginn hver fer áfram með málið. Dómarar eru að skiptast á, einhverjir eru hættir, einhverjir svara ekki tölvupóstum því að þeir eru að fara annað. Þetta er staðan og hún er algerlega óásættanleg. Og hún er í boði hæstv. dómsmálaráðherra og setts dómsmálaráðherra í þessu máli.