148. löggjafarþing — 4. fundur,  16. des. 2017.

varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum.

5. mál
[14:28]
Horfa

umhverfis- og auðlindaráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson):

Hæstv. forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum, nr. 49/1997, með síðari breytingum.

Frumvarpið var unnið í samvinnu við Veðurstofu Íslands og hefur farið í gegnum opið samráðsferli.

Í frumvarpinu er lagt til að heimilt verði að ráðstafa fé úr ofanflóðasjóði til að taka þátt í greiðslu kostnaðar við hættumat vegna eldgosa, vatnsflóða og sjávarflóða næstu fimm árin.

Það er óþarfi að fjölyrða um það að við Íslendingar búum við náttúruvá sem getur valdið miklum skaða fyrir samfélagið vegna manntjóns, tjóns á innviðum samfélagsins og eignatjóns. Á síðustu áratugum hefur verið hugað meira að hættu vegna náttúruvár og var stofnun Viðlagasjóðs og ofanflóðasjóðs verulegt framfaraskref í þeim efnum. Bent hefur verið á mikilvægi þess að bregðast verði við allri náttúruvá með sama hætti og gert hefur verið varðandi ofanflóðin, er þess vegna lagt til í frumvarpinu að vinnu við hættumat fyrir eldgos sem nú hefur staðið yfir í tæp sex ár verði fram haldið næstu fimm árin. Einnig er lagt til að vinnu við hættumat vegna vatnsflóða og sjávarflóða sem nú hefur staðið yfir í tæp þrjú ár verði sömuleiðis fram haldið.

Mikilvægi hættumats fyrir eldgos kom glögglega í ljós í umbrotunum í Bárðarbungu og Holuhrauni. Kostnaður vegna þessa atburða varð verulegur, m.a. vegna þess að ekki liggja fyrir nægilegar upplýsingar um áhættu samfélagsins vegna hugsanlegra jökulhlaupa, gass og öskudreifingar. Unnið er að skilgreiningu áhættuviðmiða og ljúka þarf þeirri vinnu þannig að viðbrögð samfélagsins verði markviss, bæði við eldgosum og til að fyrirbyggja að tjónnæmi aukist, þ.e. viðkvæmni umhverfis og samfélags við náttúruhamförum. Íslenskt samfélag verður að geta brugðist rétt við eldgosavá sem og annarri náttúruvá.

Hættumat er nauðsynleg forsenda þess að allir viðbragðsaðilar geti unnið skipulega og markvisst þegar náttúruhamfarir eru í gangi og lágmarka þannig kostnað samfélagsins.

Við sjáum merki þess að nú þegar hefur vinna við eldgosahættumat síðustu ára skilað sér. Í nýliðnum atburðum í Öræfajökli hafa sviðsmyndir svokallaðar fyrir mismunandi jökulhlaup m.a. gert það að verkum að nú er auðveldara að átta sig strax á því hvaða afleiðingar eldgos í Öræfajökli geta haft. Þetta auðveldar ákvarðanatöku viðbragðsaðila til muna. Einnig liggja fyrir niðurstöður á hermun á dreifingu ösku og öskufalls frá Öræfajökli sem hafa gagnast sömuleiðis.

Þess má geta að almannavarnadeild ríkislögreglustjóra hefur bent á að framangreind vinna við hættumat eldgosa hafi skipt sköpum við gerð viðbragðsáætlana vegna nýliðinna atburða í Öræfajökli.

Í frumvarpinu er lagt til að hættumatsvinnu fyrir vatnsflóð og sjávarflóð verði framhaldið næstu fimm árin. Hættumatið er unnið samkvæmt hættumatsramma Alþjóðaveðurfræðistofnunarinnar og Sameinuðu þjóðanna. Sá rammi hefur reynst einkar vel við vinnu hættumats vegna ofanflóða hér á landi eins og hann hefur gert reyndar víða um heim.

Fyrir þremur árum var ofanflóðasjóði heimilað með lögum að styrkja hættumatsgerð vegna vatnsflóða. Með þessu var tekið stórt skref fram á við, en nauðsynlegt er að veita áfram fjármuni til gerðar heildræns hættumats vegna vatnsflóða sem nýtist m.a. við ákvarðanatöku við landnotkun og skipulag. Mjög mikilvægt er að fyrir liggi upplýsingar um flóð og flóðahættu þegar sveitarfélög taka ákvarðanir um landnotkun og uppbyggingu varnarvirkja, með það að markmiði að draga úr tjónnæmi samfélagsins til skemmri og lengri tíma, einnig til þess að viðbragðsáætlanir séu til staðar þegar vara þarf við flóðahættu og fylgjast með framgangi flóða.

Eins og áður sagði er brýnt að unnið verði hættumat vegna allrar náttúruvár og eru sjávarflóð þar ekki undanskilin. Fjölmörg dæmi eru um minni eða meiri tjónaflóð víða við strendur landsins og hefur Vegagerðin gert áætlun um sjóvarnir og metið nauðsyn framkvæmda vegna þeirra í samræmi við lög nr. 28/1997, um sjóvarnir.

Nauðsynlegt er að veita fjármuni til gerðar heildræns hættumats vegna sjávarflóða sem nýtist m.a. við ákvarðanatöku um landnotkun, skipulag og uppbyggingu varnarvirkja. Mikilvægt er að fyrir liggi upplýsingar um sjávarflóð og sjávarflóðahættu þegar sveitarfélög taka ákvarðanir um landnotkun og aftur með það að markmiði að draga úr tjónnæmi samfélagsins. Eins og gildir fyrir aðra náttúruvá er heildrænt hættumat forsenda viðbragðsáætlana sem nauðsynlegt er að séu til staðar þegar vara þarf við áhættusömum flóðum og fylgjast með framgangi þeirra.

Hæstv. forseti. Ég hef hér rakið meginefni frumvarpsins. Afar brýnt er að halda áfram vinnu við gerð hættumats vegna eldgosa, vatnsflóða og sjávarflóða á Íslandi til að gera samfélaginu betur kleift að takast á við slíka náttúruvá og koma í veg fyrir að tjónnæmi þess aukist líkt og ég hef rakið hér að framan.

Ég legg til að frumvarpinu verði að lokinni 1. umr. vísað til hv. umhverfis- og samgöngunefndar.