varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum.
Hæstv. forseti og hv. þingmaður. Þeir fjármunir sem renna til framkvæmda á vegum ofanflóðasjóðs koma í rauninni af eigin fé sjóðsins, sem er reyndar allmikið. Þess vegna er þessu svona fyrir komið. Varðandi það sem snýr að þessum rannsóknum verður að taka af því fé sem sjóðnum er úthlutað samkvæmt ákvörðun Alþingis hverju sinni. Þess vegna er þetta nú orðað með þessum hætti. Í rauninni myndu um 100 millj. kr. fara í rannsóknirnar og dragast þær frá þeirri fjárheimild sem Alþingi ákveður að nota megi af fé sjóðsins hverju sinni. Ég vona að það svari spurningu hv. þingmanns.