148. löggjafarþing — 4. fundur,  16. des. 2017.

þjónusta við fatlað fólk með miklar stuðningsþarfir.

26. mál
[15:22]
Horfa

Halldóra Mogensen (P) (andsvar):

Forseti. Ég þakka svörin. Þetta hljómar eins og það sé bara einhver krónutala sett í málefnaflokkinn og svo ráðist magn samninga af þeirri upphæð. Mig langar að benda á að það samræmist engan veginn almennum ábendingum nefndar Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Þar er talað á þann veg að fjárhagsáætlanir skuli ekki vera notaðar til að takmarka réttindi fólks. Það er mjög skýrt. En það virðist vera að gerast hérna.

Mig langar að ítreka að ég hef talað gegn þessum kvóta á samninga. Það verða til einhvers konar hungurleikar. Ég veit að margt fólk hefur áhyggjur af því að fá ekki samning. Mér finnst að það eigi að setja aðeins meira fé í þetta, þetta eru ekki stórar upphæðir, og passa upp á að allir fái samning sem þurfa.