148. löggjafarþing — 4. fundur,  16. des. 2017.

þjónusta við fatlað fólk með miklar stuðningsþarfir.

26. mál
[15:55]
Horfa

Steinunn Þóra Árnadóttir (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Ég er ekki viss um að það væri málaflokknum til góðs að brjóta þetta upp. Þetta eru tvö frumvörp nú þegar. Ég er ekki viss um að það myndi vera málinu til góðs að taka NPA út fyrir sviga því þetta er partur af ákveðinni heild þegar kemur að ólíkri þjónustu við fatlað fólk. Það er svo kannski hv. velferðarnefndar að skera úr um það, en ég held að það sé ekki aðalatriðið heldur verði að gera sér grein fyrir að það er um stór mál að ræða.

Hvað varðar hina þverpólitísku sátt og hin ólíku sjónarmið þá held ég að þar sé um stigsmun að ræða. En hin þverpólitíska sátt hefur snúist um það að við ætlum ekki að koma þessu í ágreining heldur einmitt að leysa þetta í nefndinni þannig að við getum afgreitt það þaðan út í þverpólitískri sátt. Þess vegna eigi nefndin að vinna málið þar saman og komast að samkomulagi um það hvernig sé hægt að lenda málinu. Við förum ekki að taka það hingað inn í þingsalinn til þess að útkljá í atkvæðagreiðslu einhver deilumál. Það held ég að væri málinu alls ekki til góða.

Það er það sem ég er að tala um þegar ég segi að það séu einhverjir núansar, fínni blæbrigði, að nefndin finni út úr því og taki utan um það og klári málið frá sér í sátt. Það held ég að væri málinu öllu og sérstaklega fötluðu fólki til mestra heilla.