148. löggjafarþing — 5. fundur,  19. des. 2017.

tannlæknaþjónusta við aldraða og öryrkja.

[13:56]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Það vill svo til að ég er rétt að komast í gang með að ræða við alla sérfræðinga ráðuneytisins, en í gær ræddi ég einmitt við þann sérfræðing sem sér um tannlæknamálin akkúrat vegna þess að nú höfum við í fjárlagafrumvarpinu, sem þingið afgreiðir vonandi á allra næstu dögum, fráteknar 500 milljónir á næsta ári og síðan geri ég ráð fyrir þúsund milljónum á ári þar eftir til að koma til móts við þessi mál.

Í samtali okkar sérfræðingsins sem fer með tannlæknamálin urðum við sammála um að ganga þyrfti til þessara samninga, það þyrfti að hefja þetta samtal við tannlæknana vegna þess að þetta er flókið viðfangsefni. Leiðarljósið okkar á alltaf að vera það að tryggja jafnan aðgang að heilbrigðisþjónustu og ekki síst fyrir þessa hópa. Við ræddum raunar mál sem væri full ástæða til að taka upp í þinginu, þ.e. stöðu þeirra sem ekki geta nýtt sér hana af ýmsum ástæðum, til að mynda vegna aðgengisvanda, þjónustu tannlækna á almennum markaði. Það er eitthvað sem þarf líka að skoða.

Ég vil nefna tannlæknaþjónustu fyrir fólk sem er á jaðrinum víða í samfélaginu, fangar og aðrir slíkir. Þetta er allt saman málaflokkur sem verður að vera undir. En eins og ég segi, það var 20 mínútna afar góður fundur sem ég átti með sérfræðingnum sem sér um tannlæknamálin í ráðuneytinu í gær. Ég vonast til að eiga þá fleiri. Ég er heppin að vera búin að eiga það samtal áður en hv. þingmaður spyr mig um þetta mál akkúrat hér. En ég get fullvissað þingmanninn um að ég ætla að halda mínu striki í þessu máli.