ný vinnubrögð á Alþingi.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Birni Leví Gunnarssyni fyrir að hefja máls á þessu, nýjum vinnubrögðum. Mig langar að segja að lög eru í eðli sínu samfélagslegur sáttmáli. Við setjum lög, við erum löggjafarvaldið. Þess vegna er algert lykilatriði að löggjöf sé vel undirbúin. Mér þótti gott að heyra það sem hæstv. forsætisráðherra sagði, að það væri áhersla hjá þessari ríkisstjórn, sem kemur einmitt fram í sáttmálanum, á að auka traust til Alþingis með því að styrkja Alþingi með ýmsum hætti, þar á meðal með aðgengi okkar að sérfræðiaðstoð og einnig að mál yrðu jafnvel oftar lögð í þverpólitíska vinnuhópa eins og gert var varðandi útlendingalögin. Það var til fyrirmyndar.
Þegar ég fór að hugsa hvað ég ætlaði að segja í dag fór ég fjögur ár aftur í tímann þegar ég var nýr þingmaður. Mér fannst þetta málþóf hreinlega alveg óþolandi og gagnrýndi það mjög. Þá var ég í ríkisstjórn. Í millitíðinni hef ég verið í stjórnarandstöðu og það er mjög gagnlegt að taka sæti þar líka. Þá áttar maður sig enn betur á því hversu mikilvægt tæki þetta er miðað við þær reglur sem við höfum í dag. Ég er algerlega á því að við þurfum að breyta stjórnarskránni þannig að við getum farið dönsku leiðina, þ.e. að þingið geti skotið málum í þjóðaratkvæðagreiðslu ef þörf er á. Ég er þar.
Varðandi áframhald mála sem hv. þm. Björn Leví Gunnarsson kom inn á, að mál geti lifað áfram innan kjörtímabilsins. Mér skilst að til þess þurfi líka stjórnarskrárbreytingu. Mér finnst að við þurfum sérstaklega að huga að þeim hlutum þegar við förum í að endurskoða stjórnarskrána.