148. löggjafarþing — 5. fundur,  19. des. 2017.

ný vinnubrögð á Alþingi.

[14:34]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P):

Virðulegi forseti. Nú reynir maður enn og aftur að taka tvær mínútur í að fara yfir frekar viðamikið mál. Fyrsti vandinn er: Sérstakar umræður eru aðeins of stuttar. Ég get ekki farið inn í þetta umræðuefni án þess að nefna mikilvægi þess að við setjum okkar nýja stjórnarskrá grundvallaða á lýðveldishugsjóninni með öllu því sem því fylgir, sem er hellingur. Þar vil ég nefna sérstaklega að ráðherrar sitji ekki einnig sem þingmenn eða öllu heldur greiði ekki atkvæði á Alþingi og sérstaklega það að þjóðin hafi færi á að taka ákvarðanir í eigin hendur þegar henni sýnist. Það er sennilega mikilvægast þegar kemur að stjórnarskrármálum.

Stærsti vandinn sem ég hef kynnst á þinginu er tímaskortur, álag og skipulagsleysi. Því er oft tekið sem einhverju væli úti í bæ og það er skiljanlegt. Ég hefði sennilega gert það sjálfur ef ég hefði ekki þurft að upplifa þetta á eigin skinni. En það snýst ekki um líðan þingmanna heldur um að tímaskorturinn og álagið bitnar á afurðinni, á vinnunni. Við erum sífellt í nefndum sem og annars staðar að takast á við hafsjó af bráðabirgðaákvæðum og taka fyrir alls konar mistök þegar það hefði einfaldlega þurft meiri tíma, meira skipulag og minna álag. En það kostar.

Að mínu mati ætti að taka allan starfstíma þingsins til algerrar endurskoðunar frá grunni, bæði árstíma og dagstíma. Eitt af stóru málunum er líka að dagskráin er ekki fyrirsjáanleg. Við munum kannski aldrei geta sett hvert mál á tilteknar dagsetningar en ættum að geta forgangsraðað samkvæmt einhvers konar reglum að meðaltali. Að meðaltali fái þessi eða hinn flokkur þessi eða hin mál eða hvað sem það er.

Ég vil helst ekki fara of mikið út í ríkisstjórnarmálin þegar kemur að þessari umræðu. Þetta er þegar allt kemur til alls mál þingsins. En það þvælist fyrir að ríkisstjórnin er í skjóli meiri hluta þingsins. Ég tel það rót mjög margra vandamála.

En nú get ég ekki annað en nýtt seinustu sekúndurnar af ræðu minni, virðulegi forseti, til að leggja til að lokum að fundir fastanefnda Alþingis verði að jafnaði opnir.