ný vinnubrögð á Alþingi.
Frú forseti. Í þingsályktunartillögu sem samþykkt var samhljóða 28. september árið 2010 ályktaði Alþingi að brýnt væri að starfshættir þingsins yrðu teknir til endurskoðunar og að mikilvægt væri að Alþingi verði og styrkti sjálfstæði sitt og grundvallarhlutverk. Taka ætti gagnrýni á íslenska stjórnmálamenningu alvarlega og leggja áherslu á að af henni yrði dregin lærdómur.
Meginniðurstöður þingmannanefndar þá voru þær að auka þyrfti sjálfstæði þingsins gagnvart framkvæmdarvaldinu, leggja meiri áherslu á eftirlitshlutverk þingsins og aukna fagmennsku við undirbúning löggjafar ásamt því að gefa þingmönnum nægan tíma til að vinna að málunum.
Þingmannanefndin taldi brýnt að Alþingi tæki starfshætti sína til endurskoðunar og markaði skýr skil á milli löggjafarvaldsins og framkvæmdarvaldsins. Alþingi á ekki að vera verkfæri í höndum framkvæmdarvaldsins og oddvitaræðis, segir í skýrslu nefndarinnar.
Er ekki tími til kominn að Alþingi bregðist við gagnrýni rannsóknarnefndar Alþingis af einlægni?
Því miður hefur ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur og þingflokksformenn stjórnarflokkanna ekki sýnt nein merki um að þau ætli að breyta gömlum starfsháttum og taka meira tillit til stjórnarandstöðunnar, svo dæmi sé tekið. Við undirbúning þinghaldsins og skipan í nefndir sýndi stjórnarmeirihlutinn engan sveigjanleika og kom ekki til móts við eina einustu ósk stjórnarandstöðunnar. Sveigjanleikinn og málamiðlunin var öll stjórnarandstöðumegin.
Sú sem hér stendur hefur ekki mikla þolinmæði fyrir stjórnarmeirihluta sem notar fögur orð um hversu mikilvægt sé að bæta vinnubrögð og auka samstarf og samvinnu við stjórnarandstöðuna og vægi hennar en gerir svo nákvæmlega ekkert í því heldur þvert á móti.