ný vinnubrögð á Alþingi.
Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni Birni Leví Gunnarssyni fyrir að taka þetta mál upp þótt eðli málsins samkvæmt sé form sérstakar umræðu um þetta viðfangsefni dálítið takmarkandi vegna þess að hér er auðvitað um mjög víðfemt efni að ræða og erfitt að koma inn á alla þá þætti í stuttum ræðum sem þetta varða. Ég held að við þurfum að horfa á vinnubrögð á þingi og verklag og annað þess háttar stöðugt. Þetta er stöðugt viðfangsefni. Það verður alltaf að vera til endurskoðunar.
Þetta segi ég þrátt fyrir það að á þeim tíma sem ég hef verið á þingi hafa breytingar orðið á ýmsu regluverki sem snertir þingið. Sjálfur hef ég tekið þátt í töluvert veigamiklum breytingum á þingsköpum Alþingis, sem er það regluverk sem við förum hér eftir innan húss, bæði 2007 og 2011, annars vegar í stjórn og hins vegar í stjórnarandstöðu, en í báðum tilvikum var ég með mínum hætti ábyrgur fyrir niðurstöðunni ásamt öðrum. Þarna var um verulegar breytingar að ræða í báðum tilvikum og í báðum tilvikum var markmiðið auðvitað það að bæta og efla vinnubrögð þingsins og framfylgja öllum þeim góðu áformum sem allir þingmenn meira og minna hafa í þessum efnum.
Ég velti því stundum fyrir mér hvort þær breytingar sem við gerðum í þessum tveimur umfangsmiklu áföngum á þingsköpum hafi raunverulega skilað okkur eitthvað áleiðis. Ég velti því fyrir mér. Ég tel að ef menn ætla að fara að skoða regluverk þingsins og þingsköp í þessu ljósi þurfi þeir aðeins að meta það hvernig hefur gengið að framfylgja þeim breytingum sem þegar hafa verið ákveðnar á undangengnum árum. Hafa menn raunverulega stigið skref til góðs? Vandinn hefur kannski að hluta til verið sá að það hafa orðið mjög ör mannaskipti hér inni á þinginu þannig að það hefur kannski ekki orðið mikil samfella í þróun framkvæmdarinnar á þessu sviði. En ég myndi (Forseti hringir.) leggja það inn í þessa umræðu að það verði metið hvaða breytingar hafa verið gerðar á undanförnum árum og hvernig þær hafa reynst.