"Í skugga valdsins: #metoo".
Hæstv. forseti. Um leið og ég þakka fyrir þessa umræðu og frumkvæði málshefjanda vil ég segja að það hefur verið hrollvekju líkast að heyra frásagnir kvenna úr flestum geirum þjóðfélagsins, ekki bara hér heldur á heimsvísu, og fá vitneskju um kynferðislega áreitni og ofbeldi gagnvart svo mörgum konum að það er nánast óhugsandi. Ég er fullur aðdáunar á þeim konum sem stigið hafa fram. Ég dái hugrekki þeirra og hreinskilni.
En það er jafnframt ljóst í mínum huga að þær lýsingar á brotavilja, mannfyrirlitningu og ofbeldishneigð sem koma fram í máli þessara kvenna birta mynd af ástandi sem er óþolandi, óhugsandi og óverjandi og öllum karlmönnum til skammar. Í mínum huga er ljóst að allir karlmenn þurfa að hlusta, læra og bregðast við. Við þurfum hver og einn að gangast við ábyrgð okkar og annarra. Við þurfum að gera öðrum karlmönnum, gera gerendum ljóst að það er ekki karlmennska að áreita og nauðga. Þvert á móti er það ómennska.
Það þarf vakningu á mjög breiðum grunni til þess að reyna að færa ástandið til viðunandi vegar. Hópur íslenskra karlmanna hefur komið saman undir myllumerkinu #égertil, breiður hópur úr öllum greinum þjóðfélagsins. Ákvörðun okkar er sú að byrja að hlusta og læra og bregðast síðan við.
Við verðum að bregðast við m.a. með því að vera öðruvísi uppalendur. Það þarf að taka fræðslu um samskipti inn í til dæmis fermingarfræðslu og hjá Siðmennt og víðar. Við þurfum sjálfir að taka ábyrgð á sjálfum okkur og öðrum, (Forseti hringir.) gangast við henni, axla hana. Ég er til.