148. löggjafarþing — 5. fundur,  19. des. 2017.

"Í skugga valdsins: #metoo".

[15:37]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P):

Virðulegi forseti. Druslugangan og Free the Nipple voru — maður veit ekki alveg hvað á að kalla það; stórt framtak eða eitthvað því um líkt. #metoo er að mínu mati ekkert minna en bylting, sem byggir auðvitað á því sem á undan er gengið. Kynfrelsi er frekar nýlegt hugtak. Fyrir mörgum er það mjög óljóst enda er áhugi á því frekar nýlegur í sögulegu samhengi. En ég held að þetta sé byrjunin — byrjunin — á byltingu sem muni breyta samfélaginu varanlega. Ég trúi því að kynfrelsi verði sérstaklega skilgreint í framsæknari stjórnarskrám framtíðarinnar. Því finnst mér að við stöndum öll í þakkarskuld við þær konur sem stigið hafa fram og sagt frá þessu. Það eru þær konur sem færa það sem eiga víst að heita fórnir, en er ekki þeirra skömm. Það er jú meginpunkturinn.

Ég man eftir því þegar ég var ungur að stundum þótti enn þá í lagi að lýsa því yfir að maður væri ægilega hræddur við homma. Karlmenn sem voru ægilega hræddir við homma, það er næstum því hjákátlegt núna, eftir á að hyggja. Það var eins og þeir gerðu ráð fyrir því að ef karlmaður hefði kynferðislegan áhuga á öðrum karlmönnum yrðu þeir áreittir og líklega nauðgað. Ég minntist þessa um daginn í umræðunni því að það er svo sjúkt hugarfar. En þetta var normið lengst af og tiltölulega stutt síðan að ég hætti að heyra þetta.

Mér finnst það líka undirstrika annað: Mér finnst augljóst að ábyrgðin hlýtur að vera karla. Auðvitað kemur fyrir að karlar eru áreittir og lenda í alls konar hræðilegum hlutum. En magnið af þeim tilvikum sem henda konur er svo algerlega sturlað að það er ekkert minna en eitthvað djúpt, eitthvað sjúkt, í menningu okkar sem ég held að sé mjög rótgróið, mjög gamalt. Ég held að konur hafi því miður ekki aðgang að öllum þeim samtölum og þeim vettvangi sem karlar hafa til að reyna að (Forseti hringir.) að útrýma þessum hryllingi. Það er á okkar ábyrgð og við verðum fyrst og fremst að axla hana.