bygging 5.000 leiguíbúða.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Loga Einarssyni fyrir að opna þá umræðu sem hér er í gangi. Þetta er fyrst og fremst framboðsvandamál sem við erum að horfa til. Að nokkru leyti eru þetta heimatilbúin vandamál. Ef við horfum á stærsta sveitarfélagið, Reykjavíkurborg, þá hefur verið mjög lítið um lóðaúthlutanir þar undanfarin ár og öll áhersla í rauninni lögð á þéttingarreiti þar sem er verið að byggja dýrar íbúðir sem eru mjög fjarri því að uppfylla þær þarfir sem mestar eru og mest er kallað eftir. Á sama tíma og þessi tregða í framboði á lóðum á höfuðborgarsvæðinu byrjaði að ágerast þá fundu menn sig í þeirri stöðu að byggingarreglugerð var gjörbreytt í tíð ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur. Það er, eins og málshefjandi þekkir vel og honum væri örugglega fyllilega treystandi til þess að hanna íbúðir með allt öðru lagi en byggingarreglugerð gerir kröfu um, hlutur sem við þingmenn þurfum að líta til, að halda áfram þeirri vinnu að reyna að einfalda byggingarreglugerðina þó að ýmislegt hafi áunnist frá því öllu var skellt í lás hér á sínum tíma. Ég held að við þurfum að einhenda okkur í það að vinna saman að lausnum sem geri fólki kleift að fá sér íbúðir, hvort sem það eru keyptar eða leiguíbúðir sem uppfylla þær þarfir sem til staðar eru en eru ekki allar rammaðar inn í sama ramman.
Þetta eru auðvitað háar tölur. Það er eins og hv. þm. Logi Einarsson kom inn á að Íbúðalánasjóður telur vöntun á nýjum íbúðum, um níu þúsund íbúðir til ársins 2019. Það er annað vandamál sem við verðum að líta til, það er afkastageta kerfisins. Ég er efins um að okkur sé það einfaldlega fær vegur að byggja níu þúsund íbúðir til ársins 2019. Hluti af því er auðvitað sú veika staða sem iðnnámið hefur verið í undanfarin ár, ég leyfi mér að segja áratugi, þar sem jafnt og þétt hefur hallað undan. Það er annað átak sem við verðum að ganga í í sameiningu.
Ég vil bara ítreka þessi þrjú meginsjónarmið. Þetta er framboðsvandamál. Við þurfum að leita leiða til að gera byggingu íbúða einfaldari og hagkvæmari og opna á meiri sveigjanleika í hönnun. Við þurfum að lagfæra byggingarreglugerðina í því samhengi. Síðan þarf auðvitað að styrkja iðnnám mjög verulega frá því sem nú er til að innlend þekking sé til staðar til þess að verða að einhverju gagni í þessum efnum.