148. löggjafarþing — 5. fundur,  19. des. 2017.

bygging 5.000 leiguíbúða.

43. mál
[16:12]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf):

Herra forseti. Það skiptir töluverðu máli að hið virðulega Alþingi fáist við þau mál sem brenna hvað heitast á landsmönnum. Þar eru það annars vegar heilbrigðismálin og hins vegar húsnæðismálin. Þess vegna ber að fagna þingsályktunartillögunni sem hér er fjallað um, enda um risastórt hagsmunamál fyrir allan almenning að ræða.

Staðan á húsnæðismarkaðnum er líkust hamförum. Frumskógarlögmál hefur ríkt þar sem kaupendur hlaupa til og yfirbjóða hver annan eða reyna að koma sér í mjúkinn hjá fasteignasölum til að fá að skoða eignir áður en þær koma á sölu til að skapa sér forskot og á hinum endanum eru svo leigjendur sem hafa þurft að þola mikið óöryggi á leigumarkaðnum hvar leiguverð hækkar stöðugt og æ fleiri íbúðir fara í skammtímaleigu til ferðamanna. Hér tapa alltaf þeir sem standa hvað höllustum fæti, þeir tekjulægstu, barnmargar fjölskyldur, aldraðir, öryrkjar, þeir hópar sem stjórnvöld hverju sinni eiga sérstaklega að leggja sig fram um að styðja.

Ég tek undir orð hv. þm. Smára McCarthys sem sagði að húsnæðismálin væru ekki aðeins félagsleg mál heldur líka heilbrigðismál, af því að það að þurfa stöðugt að hafa áhyggjur af því hvar og hvernig fjölskyldan ætlar að haga búsetu sinni næstu mánuði eða ár veldur mjög þungum áhyggjum og kemur niður á heilsufari þeirra sem þurfa að glíma við það.

Varðandi þensluhvata með þeim aðgerðum sem lagt er til er vert að halda því til haga að þensla vegna hóteluppbygginga er að minnka. Því eru aðstæður á næstu árum tilvaldar fyrir íslensk stjórnvöld til að stíga inn af alvöru.

Það er ekki úr vegi að bregðast örlítið við orðum hv. þm. Norðvest., Bergþórs Ólasonar. Það er vert að benda þingmanninum á, sem sagði lóðaskort í Reykjavík og þéttingarstefnu borgaryfirvalda orsakavald húsnæðisvanda landsins, að hvorki fleiri né færri en 1.200 íbúðir hafa verið á skammtímaleigumarkaði í Reykjavík á undanförnum árum. Það er auðvitað eitthvað sem engan gat grunað að yrði en er neikvæður fylgifiskur hins ágæta ferðamannastraums sem við höfum fengið að njóta síðustu ár.

Herra forseti. Stjórnvöld geta á þann hátt sem lagt er til í þingsályktunartillögunni stigið inn með afgerandi hætti og aukið þannig félagslegan stöðugleika á Íslandi. Félagslegur stöðugleiki er forsenda hagsældar, (Forseti hringir.) sem hlýtur alltaf að vera meginmarkmið þeirra sem við stjórnvölinn sitja hverju sinni. Því skora ég á þingheim að greiða þessari tillögu (Forseti hringir.) atkvæði.