148. löggjafarþing — 5. fundur,  19. des. 2017.

bygging 5.000 leiguíbúða.

43. mál
[16:21]
Horfa

Flm. (Logi Einarsson) (Sf):

Herra forseti. Kærar þakkir fyrir umræðuna. Nei, hér er ekki um að ræða fullkomna þingsályktunartillögu enda erum við að fara að tileinka okkur ný vinnubrögð þannig að hér verður allt lagað. En könnun Íbúðalánasjóðs á hug fólks til þess að eiga leiguhúsnæði á móti því að eiga segir ekkert alla söguna, vegna þess að fólk þekkir ekki leigukerfið sem er svo þroskað og þróað um alla Evrópu. Það væri allt öðruvísi ef fólk þekkti það. Leigukerfið sem fólk þekkir hér á landi er þannig að maður borgar okurleigu og á það á hættu að vera kastað út með nokkurra mánaða millibili. Það gefur ekki góðar væntingar.

Ég held að það sé alveg rétt hjá hv. þingmanni að það þarf að laga sveiflurnar sem eru í byggingariðnaðinum. Ég þekki það nú heldur betur. Það gerum við með greiningu og með fjármagni í rannsóknum og nýsköpun. Af því við líka erum 70% á eftir — við erum með 70% af framlegð t.d. Norðmanna þegar kemur að því að byggja húsnæði. Það er líka dýrt að vera lengur að því að byggja húsnæði en maður þarf. Það kostar peninga að búa til léttar, versksmiðjuframleiddar hugmyndir og þróa þær.

Ég er sammála hv. þingmanni sem nefndi hér áðan að það þyrfti að liðka fyrir byggingarreglugerð. Við þurfum hins vegar að hafa það alltaf í huga að það má ekki koma niður á lífsgæðum fólks og það má ekki bitna á fólki með sérþarfir, eins og fötluðum og öðrum. Það er því vandasamt.

Ég tek undir orð hv. þm. Þorsteins Víglundssonar. Ég held það væri skynsamlegt að skoða framlengingu á undanþáguákvæði sem heimilar Íbúðalánasjóði að lána til ákveðinna verkefna á ákveðnum kjörum. Ég held að það myndi líka liðka fyrir þessu.

Byggingarmál eru ekki bara félagslegur þáttur, eins og hér hefur verið nefnt. Þau eru heilbrigðismál. Síðast en ekki síst er byggingarstarfsemi á Íslandi umhverfismál og stærsta umhverfismálið sem við stöndum frammi fyrir, eða þar sem við getum náð mestum árangri. Það er ég búinn að margtyggja í mörgum ræðum síðasta árið. Við þurfum að fara að tileinka okkur að byggja þéttar. Við þurfum að tileinka okkur að byggja minna og við þurfum að tileinka okkur að byggja hraðar úr efnum sem ganga ekki á umhverfið umfram það sem nauðsynlega þarf.

Þessi þingsályktunartillaga er fyrst og fremst mótmælaspjald sem maður lyftir á loft til þess að benda á að það þarf að koma á móts við mjög viðkvæman hóp í samfélaginu sem eru fátækir og ungt fólk. Við tökum svo tillöguna og lögum hana til, komum henni í réttan og viðeigandi farveg. Síðan ræðum öll hin málin sem lúta að byggingarstarfsemi í landinu þannig að við séum ekki í þessari rússíbanareið. Það má kannski segja að byggingamarkaðurinn á Íslandi (Forseti hringir.) sé líkastur íslenskri krónu í hegðun, enda er hann náttúrlega (Forseti hringir.) undir áhrifum hennar.