148. löggjafarþing — 5. fundur,  19. des. 2017.

almenn hegningarlög.

10. mál
[16:25]
Horfa

Flm. (Jón Steindór Valdimarsson) (V):

Herra forseti. Ég mæli í annað sinn fyrir frumvarpi til laga um breytingu á almennum hegningarlögum en flutningsmennirnir eru tólf og koma úr sex stjórnmálaflokkum.

Umfjöllunarefnið er alvarlegt. Á síðasta ári leituðu 169 einstaklingar á neyðarmóttöku Landspítala vegna nauðgana en þeir hafa aldrei verið fleiri. Árið 2015 leituðu 145 einstaklingar til neyðarmóttökunnar. Þrátt fyrir þetta hefur nauðgunarkærum til lögreglu ekki fjölgað. Nauðgunarmálum sem komu inn á borð Stígamóta fjölgaði um 58 milli áranna 2015 og 2016. Talskona Stígamóta sagði í samtali við Morgunblaðið fyrr á þessu ári að það væri nærtækt að álykta að nauðgunarfaraldur hefði orðið. 27 lyfjanauðganir voru tilkynntar til Stígamóta 2016 en 13 árið áður. 29 hópnauðganir voru tilkynntar til Stígamóta 2016 en 11 árið áður. Við því verður að bregðast.

Kynferðislegt ofbeldi og nauðganir eru samfélagslegt mein sem þarf að sporna við eins og nokkur kostur er með fræðslu, viðhorfsbreytingu og nauðsynlegum lagabreytingum. Frumvarp það sem hér er mælt fyrir er viðleitni í þá átt. Frumvarpið felur í sér að horfið verði frá því að skilgreina nauðgun út frá verknaðaraðferð. Þess í stað verði samþykki sett í forgrunn, með öðrum orðum að sá sem á samræði eða önnur kynferðismök við annan án samþykkis hans sé sekur um nauðgun. Þannig er það skortur á samþykki til samræðis eða annarra kynferðismaka sem skilgreinir nauðgunina. Samþykki fyrir samræði eða öðrum kynferðismökum þarf að hafa verið tjáð af frjálsum vilja.

Núgildandi 1. mgr. 194. gr. almennra hegningarlaga hefst með þessum orðum, með leyfi forseta:

„Hver sem hefur samræði eða önnur kynferðismök við mann með því að beita ofbeldi, hótunum eða annars konar ólögmætri nauðung gerist sekur um nauðgun …“

Frumvarp okkar gerir ráð fyrir því að skipta út þessum upphafsorðum og setja í staðinn:

„Hver sem hefur samræði eða önnur kynferðismök við mann án samþykkis hans gerist sekur um nauðgun …“

Til viðbótar bætist síðan inn í ákvæðið:

„Samþykki telst liggja fyrir ef það er tjáð af frjálsum vilja. Samþykki telst ekki liggja fyrir ef það er fengið með ofbeldi, hótunum eða annars konar ólögmætri nauðung, eða með því að beita blekkingum eða hagnýta sér villu viðkomandi um aðstæður.“

Herra forseti. Ákvæðum kynferðisbrotakafla almennra hegningarlaga er það öllum sameiginlegt að varða kynlíf fólks og er ætlað að vernda frelsi á því sviði. Hagsmunir þeir sem ákvæðin eiga að vernda eru fyrst og fremst friðhelgi einstaklingsins, þ.e. kynfrelsi og sjálfsákvörðunarréttur hvað varðar kynlíf, líkama og tilfinningalíf. Hver einstaklingur hefur þannig frelsi til að ákveða að hafa samræði eða önnur kynferðismök en jafnframt rétt til þess að hafna þátttöku í kynferðislegum athöfnum. Nauðsynlegt er að mati flutningsmanna að skilgreina nauðgun út frá skorti á samþykki til þess að unnt sé að veita kynfrelsi fullnægjandi réttarvernd.

Þekkt er að þolendur nauðgana geta ekki í öllum tilvikum veitt geranda mótspyrnu, t.d. vegna þess að þeir frjósa eða lamast af hræðslu. Rannsóknir hafa leitt í ljós að þessi viðbrögð eru algeng og að gerandi þarf þá ekki að beita miklu líkamlegu afli til að ná fram vilja sínum. Það verður sömuleiðis til þess að í reynd er óalgengt að þolendur beri mikla líkamlega áverka eftir nauðgun og samkvæmt könnuninni voru alvarlegir líkamlegir áverkar afar sjaldgæfir. Þetta kemur fram í skýrslu sem unnin var á vegum Eddu – öndvegisseturs í samvinnu við innanríkisráðuneytið árið 2013.

Herra forseti. Öll þekkjum við umræðu um kynferðisbrot, hversu fá þeirra rata til lögreglu, að veruleikinn er sá að sönnunarbyrðin er þung og að þau eru því miður, að því er virðist, mjög útbreidd í samfélagi okkar. Ljóst er að breytt skilgreining á nauðgun í almennum hegningarlögum breytir því ekki að sönnunarstaða í kynferðisbrotamálum verður alltaf þung. Þessi nýja skilgreining á nauðgun er því vissulega engin töfralausn. Á hinn bóginn er hin breytta skilgreining til þess fallin að stuðla að brýnum breytingum á viðhorfum til brotsins. Verði nauðgun skilgreind út frá skorti á samþykki mun áhersla á samþykki aukast við rannsókn og saksókn nauðgunarbrota. Þá mun slík skilgreining jafnframt fela í sér að mikilvægi kynfrelsis er gert mun hærra undir höfði en áður og jafnvel geta orðið til þess, samhliða aukinni fræðslu, að fólk verði meðvitað um mikilvægi þess að samþykki liggi fyrir þegar kynferðislegar athafnir eiga í hlut. Það á því að hafa almenn varnaðaráhrif. Þá er slík nálgun eðlileg refsiréttarleg þróun á útfærslu nauðgunarákvæðisins þar sem í auknum mæli hefur verið horfið frá áherslu á ofbeldi og hótanir gerenda og sjónum beint að vernd kynfrelsis, þ.e. hvort viðkomandi hafi samþykkt að taka þátt í kynferðislegri athöfn eða ekki. Að teknu tilliti til aukinnar þekkingar á eðli nauðgunar og þess veruleika þar sem brotin eiga sér stað þykir flutningsmönnum tímabært að nauðgun verði nú skilgreind út frá samþykki með sjálfsákvörðunarrétt, friðhelgi og athafnafrelsi einstaklinganna að leiðarljósi.

Herra forseti. Þann 1. október síðastliðinn birtist grein í vefriti Úlfljóts eftir Ragnheiði Bragadóttur, prófessor við lagadeild Háskóla Íslands, þar sem hún ræðir m.a. efni frumvarps þessa. Með leyfi forseta:

„Í þessari tillögu er komin lausn sem tekur samþykki inn í lagaákvæðið og fullnægir kröfum um skýrleika refsiheimilda, því að þar er skilgreint hvenær samþykki er fyrir hendi og hvenær ekki. Í þeirri skilgreiningu eru notuð sömu hugtök og í gildandi lögum. Frumvarpið felur því ekki í sér mikla breytingu en segja má að það sé eðlilegur þáttur í þróun réttarins og þar er leitast við að tryggja að lögin séu í samræmi við réttarvitund almennings. Hins vegar leiðir frumvarpsákvæðið samþykkið betur fram í dagsljósið, er auðskiljanlegt og slíkt ákvæði gæti haft áhrif til að fyrirbyggja brot.“

Herra forseti. Við gerð frumvarpsins var m.a. litið til nýlegrar skýrslu sænskra stjórnvalda um aukna vernd kynfrelsis. Við skilgreiningu frumvarpsins á nauðgun er tekið mið af tillögu sem þar kemur fram um breytingu á nauðgunarákvæði sænsku hegningarlaganna. Hvað varðar hugtakið „samþykki“ í 1. gr. frumvarpsins er ljóst að samþykki til þátttöku í samræði eða öðrum kynferðismökum verður að tjá með orðum eða annarri ótvíræðri tjáningu. Í því felst að gefa þarf samþykki til kynna eða að virk þátttaka í tiltekinni athöfn verði túlkuð sem samþykki af hálfu annars eða annarra þátttakenda. Ekki verður gerð krafa um að þátttakandi mótmæli eða sýni mótstöðu gagnvart þátttöku í kynferðislegri athöfn. Þá getur algert athafnaleysi heldur ekki verið túlkað sem vilji til þátttöku. Af kynfrelsi leiðir að eðlilegt er að þátttakandi í kynferðislegri athöfn geti hvenær sem er skipt um skoðun um þátttöku sína. Slík skoðanaskipti verður að tjá með orðum eða annarri tjáningu þannig að ætla megi að annar eða aðrir þátttakendur verði þessi áskynja. Ekki er talið æskilegt að skilgreina of nákvæmlega með hvaða hætti samþykki skuli tjáð. Hætta er á að löggjöf sem setur nákvæm skilyrði fyrir því hvernig einstaklingur skuli tjá sig verði ekki í samræmi við hvernig mannleg samskipti eru í raun. Einnig er gert ráð fyrir að samþykki liggi ekki fyrir ef það er fengið með því að beita blekkingum eða með því að hagnýta sér villu viðkomandi um aðstæður.

Herra forseti. Frumvarp þetta er liður í því að breyta viðhorfum sem feðraveldi fortíðar hefur skapað og eru enn ríkjandi eða eimir mjög sterkt af á mörgum stöðum. Það þarf eflaust ekki að minna þingheim á #höfumhátt og síðan á #metoo-byltinguna sem farið hefur eins og eldur í sinu um heimsbyggðina og er Ísland þar engin undantekning. Þar sést svart á hvítu að samfélagið er gegnsýrt af viðhorfum og þar með hegðun sem við getum ekki látið viðgangast. Það er löngu kominn tími til að hverfa frá þeim karllægu sjónarmiðum sem endurspeglast víða að við tilteknar aðstæður eigi karlmaður nánast rétt á kynlífi með konu. Við þurfum að breyta lögunum til samræmis við réttarvitund almennings og beita þeim til þess að breyta viðhorfum og hafa áhrif til hins betra á þessu mikilvæga sviði mannlífsins.

Herra forseti. Flutningsmenn treysta því að hv. þingheimur sameinist um að veita frumvarpinu öruggt brautargengi þannig að það verði sem allra fyrst að lögum. Með því styðjum við og virðum baráttu kvenna.