148. löggjafarþing — 5. fundur,  19. des. 2017.

nýting forkaupsréttar ríkisins að hlutabréfum í Arion banka.

47. mál
[16:58]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni fyrir að opna þessa umræðu í dag. Það eru tvö atriði sem mig langar að tæpa sérstaklega á. Í fyrsta lagi mikilvægi þess að menn komist af stað við endurskipulagningu fjármálakerfisins. Fyrr í dag var umræða um leigumarkaðinn þar sem hv. þm. Logi Einarsson lagði það til að ríkið styddi við fimm þúsund nýjar leiguíbúðir. Það gekk í gegnum þá umræðu það sem öllum er auðvitað ljóst að þetta snýst allt um vexti. Vextir á Íslandi eru háir, allt of háir, raunvextir allt, allt of háir. Það er slagurinn sem við verðum að taka. Hluti af leiðinni að því marki að ná raunvöxtum niður er endurskipulagning bankakerfisins. Þetta er eitt púslið í þeirri vinnu, virðulegi forseti.

Ýmsir hafa haft það á orði við mig undanfarna daga að þetta sé tóm vitleysa, allur þessi leiðangur og þessar vangaveltur að ríkið fari að kaupa banka sem það á hvort sem er sjálft og þetta sé sennilega allt of hátt verð sem ríkið þurfi að borga fyrir bankann. Dettur einhverjum til hugar að þessir ágætu sjóðir sem eru tiltölulega hagnaðardrifnir, sennilega mest hagnaðardrifnu fyrirtæki í heimi, væru að kaupa á þessu verði ef undirliggjandi verðmæti væru ekki staðar og vel rúmlega það?