kosningar til sveitarstjórna.
Virðulegur forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um kosningar til sveitarstjórna. Frumvarpið lýtur að einu ákvæði er varðar kosningaaldur. Í sem stystu máli er lagt til að lækka kosningaaldur í sveitarstjórnarkosningum úr 18 árum í 16 ár.
Flutningsmenn að þessu máli auk þess sem hér stendur eru allnokkrir, það eru hv. þingmenn Anna Kolbrún Árnadóttir, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, Björn Leví Gunnarsson, Hanna Katrín Friðriksson, Jón Steindór Valdimarsson, Karl Gauti Hjaltason, Kolbeinn Óttarsson Proppé, Logi Einarsson, Smári McCarthy, Vilhjálmur Árnason, Þorsteinn Víglundsson og Þórunn Egilsdóttir.
Ég þyl þetta upp til að vekja sérstaka athygli á nokkru sem gleður mig við þetta frumvarp. Hér eru flutningsmenn frá öllum stjórnmálaflokkum sem sæti eiga á Alþingi. Þetta þykir mér eiga vel við vegna þess að síðast þegar kosningaaldur var lækkaður árið 1984 þegar hann fór úr 20 árum í 18 ár var samstarf allra flokka á þingi þar að baki. Lýðræðið er sameiginlegt samvinnuverkefni okkar allra sem hér sitjum og þess vegna þykir mér eðlilegt að við komum öll að því að þróa það áfram.
Frumvarpið byggir á þingmálum sem áður hafa verið lögð fram á þingi, hið fyrsta raunar fyrir hartnær 11 árum, í janúar 2007, þannig að meðgangan hefur verið nokkur. Málin hafa ekki öll litið eins út og þetta. Fyrst var lögð fram þingsályktunartillaga af varaþingmanni Vinstri grænna, Hlyni Hallssyni, þess efnis að ráðherra kannaði möguleikann á því að lækka kosningaaldur niður í 16 ár. Því fylgdu nokkrar tilraunir til stjórnarskrárbreytinga til að lækka kosningaaldurinn í öllum kosningum. Það sem hefur verið gert núna er ítrekun á því sem lagt var fram á 146. og 147. þingi sem er eins og fyrr segir breyting á lögum um kosningar til sveitarstjórna, sem krefst einungis einfaldrar lagabreytingar en ekki stjórnarskrárbreytingar eins og um kosningar til Alþingis.
Það er hins vegar von mín að þessi breyting, nái hún í gegn, veki það mikla lukku við næstu sveitarstjórnarkosningar að þingheimur sjái í hendi sér að breyta stjórnarskrá kringum næstu kosningar svo hægt sé að lækka kosningaaldur yfir línuna.
Lækkun kosningaaldurs snýst um að hópur ungmenna fái ekki bara rödd til að hafa áhrif á það sem gerist í nærsamfélagi þeirra, heldur hreinlega beina aðkomu að ákvarðanatökunni í sama mæli og við sem eldri erum. Af því að við erum að skoða þetta í samhengi við sveitarstjórnarkosningar þá eru sennilega fáir sem þekkja málefni sveitarstjórna betur og nánar en einmitt þessi aldurshópur sem er nýbúinn að ganga í gegnum leikskóla og grunnskóla sem eru einhver stærstu verkefni sveitarstjórna.
Vel að merkja. Hér er ekki verið að leggja til að 16 og 17 ára börn verði fullorðin. Þau eiga áfram að vera börn.
Þetta er eitthvað sem er dálítið hollt fyrir okkur sem hér sitjum. Samkvæmt barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna eiga börn rétt á að láta í ljós skoðanir sínar í öllum málum sem þau varðar. Þeirri skyldu okkar að hlusta á börn megum við aldrei gleyma. En með því að gera tvo árganga barna að virkum kjósendum tel ég að við myndum styrkja þessa hugsun hjá kjörnum fulltrúum sem ég er hræddur um að allt of oft gleymi að taka tillit til sjónarmiða barna.
Nokkrar áhyggjur eru af því að kjörsókn fari minnkandi. Því miður eigum við ekki almennilegar tölur til að styðja þá fullyrðingu. Þetta er það sem kosningarannsókn Félagsvísindastofnunar bendir til. Hún hefur verið framkvæmd frá 1983. Í kjölfar þeirra niðurstaðna, sem framkvæmdar eru með skoðanakönnun, hefur verið gerð talning á kjósendum við allar alþingiskosningar frá árinu 2014 þar sem þeir eru greindir eftir aldri, og kosningaþátttaka þeirra. Þá kemur í ljós að þátttaka ungs fólks, fólks undir þrítugu í kosningum, er lægri en þeirra sem eru yfir þrítugu. Þetta er eitthvað sem er unnið að úrbótum á ýmsum vettvangi. Það að lækka kosningaaldur getur mögulega verið liður í þeim aðgerðum, getur mögulega glætt áhuga ungs fólks að einhverju leyti, en þetta eru margþættar aðgerðir sem við þurfum að fara í allar samhliða. Við þurfum að halda áfram að rannsaka ástæður þess að ungt fólk tekur ekki jafn mikinn þátt í hefðbundnum stjórnmálum og þeir sem eldri eru. Við þurfum líka að styðja við fræðslu.
Í tengslum við verkefnið #égkýs fyrir kosningarnar 2016 voru settir saman rýnihópar framhaldsskólanema á aldrinum 16–20 ára til að svara spurningunni „hvað fær ungt fólk til að kjósa?“ Þessir hópar leiddu í ljós að þar kæmi helst þrennt til. Það þyrfti aukið aðgengi að stjórnmálum og upplýsingum um stjórnmál, það þyrfti að bæta stjórnmálafræðslu á öllum skólastigum, og meiri virðingu fullorðinna í garð ungmenna.
Þetta er í takt við þá umræðu sem hefur átt sér stað um þessi þingmál okkar hér áður og er eitthvað sem er mikilvægt að hafa í huga alveg óháð því hvort við lækkum kosningaaldurinn eða ekki. Auka þarf stuðning við skuggakosningar. Auka þarf stuðning við lýðræðislega starfsemi innan skólanna og lýðræðiskennslu á öllum skólastigum og gera allt sem við getum til að leyfa ungu fólki að upplifa að það geti haft áhrif á samfélagið.
Það er eitthvað sem ungt fólk er að gera. Það er gjarnan talað um óhefðbundna stjórnmálaþátttöku ungs fólks. Við vorum fyrr í dag að ræða samfélagsmiðlabyltingarnar sem hafa breytt samfélaginu á síðustu árum. Þær eru gott dæmi um hvernig kraftur ungs fólks getur brotist fram utan hins hefðbundna stjórnmálakerfis. Þannig að áskorunin — þetta klagar kannski meira upp á okkur. Þetta klagar upp á hefðbundnu stjórnmálin. Hefðbundin stjórnmál eru ekkert að fara. Alþingi og sveitarstjórnir eru hluti af þeim veruleika sem við búum við. Við þurfum að finna leiðir til að fá ungt fólk inn af því að við þurfum fólk á öllum aldri. Við þurfum eins margar viljugar hendur til að vinna að því að gera samfélagið betra. Ég tel að þessar breytingar á kosningaaldri geti verið liður í því. Jákvæð reynsla þeirra landa sem hafa stigið þetta skref gefur mér ástæðu til að ætla það. Ég nefni t.d. Austurríki sem byrjaði á því að taka skrefið á sveitarstjórnarstigi, víkkaði það svo út í forseta- og þingkosningar. Svo nefni ég líka Skotland þar sem 16 ára ungmenni fengu að kjósa í þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði Skotlands. Reynslan af því varð til þess að skoska þingið samþykkti með yfirgnæfandi meiri hluta að sveitarstjórnar- og þingkosningar til skoska þingsins yrðu aðgengilegar 16 ára fólki.
Oftar en ekki, forseti, er það yngra fólkið sem leiðir eldri kynslóðir áfram til framtíðarinnar með hugmyndum sínum um jafnrétti og lýðræði. Með því að veita ungu fólki, börnum á aldrinum 16–18 ára kosningarétt yrði stigið stórt skref í þá átt að efla rödd ungs fólks í samfélaginu sjálfu til heilla, auk þess sem yngra fólk fengi þar tækifæri til að móta líf sitt og framtíð á sama hátt og aðrir borgarar.
Ég legg til að að lokinni þessari umræðu verði málinu vísað til allsherjar- og menntamálanefndar. Mig langar að beina því til nefndarinnar, af því að ég ber nokkra von í brjósti um að þetta klárist fljótt og örugglega, að hún athugi hvort ekki sé hægt að ljúka nauðsynlegum úrbótum á málinu og leggja það fram til afgreiðslu snemma á nýju ári, þannig að núna í sveitarstjórnarkosningum í vor geti tveir nýir árgangar kjósenda komið að kjörkössunum og unnið að því að gera samfélagið betra.