148. löggjafarþing — 5. fundur,  19. des. 2017.

kosningar til sveitarstjórna.

40. mál
[17:29]
Horfa

Sigurður Páll Jónsson (M):

Hæstv. forseti. Ég er ekki á þessu frumvarpi en mér finnst það mjög áhugavert þegar ég er búinn að lesa það og greinargerðina með því, líka sú hugsun og þau rök sem hafa verið færð fyrir þessu, að ungt fólk, 16 ára, fái kosningarrétt í sveitarstjórnarkosningum.

Ég man eftir því núna úr kosningabaráttunni og eins í kosningabaráttunni í fyrra þegar við fórum í skólana og hlustuðum og töluðum við unga fólkið hvað það var áhugasamt nokkuð heilt yfir. Ég man líka eftir því þegar ég var sjálfur unglingur. Í skólanum var ekki mikið talað um þessi mál en ég man eftir einum kennara, sem ég hitti meira að segja í kosningabaráttunni og rifjaði það upp með honum, sem lét okkur æfa okkur aðeins í einhverjum tímum að fara með framboðsræður. Ég man eftir að það kviknaði neisti í brjóstinu á mér við það, en því var ekkert fylgt eftir fyrr en 40 árum síðar.

Mér líst mjög vel á þetta, líka til að vekja athygli unglinga eða áhuga réttara sagt á pólitík, til þess að innræta þeim að stjórnmál komi okkur öllum við. Það er allt of mikið um að ungu fólki finnist það ekki eiga að hafa skoðanir, sem þau eiga náttúrlega að hafa. Þau eiga að hafa skoðanir og þau eiga að byrja að hugsa um þessi mál, að mínu áliti sem fyrst, því að það kemur okkur öllum við hvernig landinu er stjórnað. Ég kem til með að fylgjast spenntur með málinu í framhaldinu.