fæðingar- og foreldraorlof.
Herra forseti. Ég fagna flutningi þessa máls og leyfi mér að lýsa stuðningi við það. Hér er á ferðinni mjög gott mál sem skiptir miklu máli fyrir fólk sem býr úti á landi og er ekki svo heppið að búa nálægt fæðingarstað. En það skiptir líka máli fyrir þá sem búa jafnvel á fæðingarstað vegna þess að það er ekki alltaf þannig að á öllum stöðum úti á landi, jafnvel þar sem eru heilbrigðisstofnanir, sé nægilega örugg og stöðug þjónusta til þess að tryggja að foreldrar barna, t.d. barna þar sem er um áhættufæðingar að ræða, geti lifað við það öryggi sem fólk á höfuðborgarsvæðinu býr við. Þess vegna er þetta alveg gríðarlega mikilvægt.
Það má segja að þetta frumvarp mæti að vissu leyti ákveðinni breytingu sem er að verða á hugarfari okkar á undanfarinni öld til fæðinga og barneigna. Almenningur í þessu landi ætlast til þess að börn sem koma í heiminn komist nánast öll á legg, foreldrarnir eigi allir tækifæri til að fylgja þessum börnum úr hlaði alla ævi o.s.frv. Það er ekki lengur þannig að við getum sætt okkur við að taka einhverja áhættu í sambandi við meðgöngu og fæðingar, alla vega ekki að nauðsynjalausu. Þess vegna bætir þetta frumvarp úr miklum ágöllum í okkar kerfi.
Á öðrum kostnaðarþáttum sem óhjákvæmilega koma til af þessari tegund heilbrigðisþjónustu og raunar annarri þarf hins vegar að taka á í öðrum lögum og taka á þeim að hluta til með öðrum hætti, sérstaklega dvalarkostnaði fyrir foreldrana á höfuðborgarsvæðinu og það sama á náttúrlega við um aðra sem þurfa að sækja sér læknisþjónustu hingað.
Ég tel að hér sé um réttlætismál að ræða og vona að það fái farsæla afgreiðslu í þinginu.