148. löggjafarþing — 6. fundur,  21. des. 2017.

störf þingsins.

[10:37]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf):

Herra forseti. Ég þakka kærlega fyrir þessa ánægjulega jólakveðju sem ég og aðrir þingmenn móttókum frá hv. þm. Ásmundi Friðrikssyni. Ég kem hér upp til að ræða nýfallinn dóm Hæstaréttar sem var býsna afdráttarlaus, þar sem hæstv. dómsmálaráðherra var dæmd fyrir að brjóta gegn 10. gr. stjórnsýslulaga. Um er að ræða rannsóknarreglu sem er öryggisregla í stjórnsýslurétti.

Sem formaður í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd vil ég greina frá þeirri málsmeðferð sem samþykkt var einróma í gær í nefndinni að fram færi í kjölfar þessa dóms, sem var býsna afdráttarlaus, svo ekki sé meira sagt. En það er ekki bara dómsmálaráðherra sem ber þarna ábyrgð heldur verður Alþingi líka aðeins að líta í eigin barm hvað varðar það sem átti sér stað hér á Alþingi í sumar.

Engu að síður tekur Hæstiréttur algerlega af öll tvímæli um að samkvæmt stjórnskipunarvenju er það ráðherra sem ber ábyrgð á þeirri framkvæmd sem þarna átti sér stað og það er hún sem skipar í þetta embætti. Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd ætlar í kjölfarið að kalla til sérfræðinga, að fara yfir stjórnskipulega stöðu ráðherrans í kjölfar þessa dóms, enda er um býsna alvarlegt mál að ræða þar sem verið var að setja heilt dómstig. Ég taldi rétt að upplýsa um það og að sjálfsögðu veitum við allar frekari upplýsingar, við nefndarmenn í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd.


Efnisorð er vísa í ræðuna