störf þingsins.
Herra forseti. Fyrst vildi ég nefna að það er dálítið kostulegt að heyra hvern þingmann stjórnarandstöðunnar á fætur öðrum koma hér upp og lýsa mikilli hneykslan á því að á þeim örfáu vikum sem liðnar eru frá því að ný ríkisstjórn var mynduð skuli hún ekki vera búin að koma öllum sínum stefnumálum í verk. Ný ríkisstjórn tók við völdum í byrjun mánaðarins og hafði hálfan mánuð til að vinna að breytingum á fjárlagafrumvarpi og ég verð að segja að það er mikil bjartsýni af hálfu hv. þingmanna stjórnarandstöðunnar ef þeir halda að þessi ríkisstjórn, eða nokkur ríkisstjórn, geti á jafn skömmum tíma komið fram með allar þær tillögur sem finna má í stjórnarsáttmála hennar. Þetta er byrjun á vegferð en við sem að þessari ríkisstjórn stöndum lítum svo á að vegferðin muni taka fjögur ár og þeim áformum sem koma fram í stjórnarsáttmála verður hrint í framkvæmd.
Þó að menn geti fundið dæmi um eitthvað sem sagt var fyrir kosningar eða eitthvað sem sagt er í stjórnarsáttmála sem ekki birtist í fjárlagafrumvarpi sem kemur fram við afar sérstakar aðstæður er ástæðulaust að missa sig í einhverri hneykslunaröldu hérna í þingsal.
Hitt atriðið sem ég ætlaði að nefna varðar fund stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar í gær sem ég átti kost á að sitja sem varamaður vegna nýfallins dóms Hæstaréttar. Ég held að það sé rétt að átta sig á því að það sem nefndin þarf að gera og er sammála um að gera í þessu sambandi er að átta sig í fyrsta lagi á því hver aðkoma nefndarinnar á að vera í málum af þessu tagi. Nú er auðvitað um það að ræða að þingið og nefndin hefur ákveðna eftirlitsskyldu en hins vegar hefur fallið dómur sem hefur tekið á mörgum af þeim álitamálum sem upp geta komið í sambandi við málsmeðferð. Við þurfum að ræða það, við þurfum að ræða stjórnskipulega stöðu og ekki síst þurfum við að velta fyrir okkur hvort dómurinn gefi okkur með einhverjum hætti tilefni til lagabreytinga, (Forseti hringir.) breytinga á fyrirkomulagi eða einfaldlega því að skýrt sé á einhverjum ákvæðum sem um þessi mál varða. (Gripið fram í.)