störf þingsins.
Hæstv. forseti. Heilbrigðisstofnanir á landsbyggðinni virðast gleymast í fjárlögum og eins og störf þingsins raðast núna er lítið sem ekkert svigrúm til þess að benda á þau sjónarmið að fólk þarf þjónustu og líka á landsbyggðinni. Við heyrum fréttir af því að það er beinlínis sett hagræðingarkrafa á stofnanir á landsbyggðinni og í fyrradag heyrðum við að íbúar Vestmannaeyja geta ekki sótt eðlilega þjónustu í heimabyggð og ég nefni sérstaklega fæðingarþjónustu. Samt skilst mér að læknar séu tilbúnir til að starfa í Vestmannaeyjum, það er ekki vandamál.
Í gær heyrði ég svo að gestir frá heilbrigðisstofnunum landsbyggðarinnar hefðu komið í röðum á fund fjárlaganefndar og fengið um hálftíma til að gera grein fyrir mikilvægi þjónustunnar, af hverju ætti að muna eftir landsbyggðinni o.s.frv.
Fólki finnst í lagi að t.d. aðili frá Heilbrigðisstofnun Norðurlands fái hálftíma til að sannfæra menn um að ekki sé gerlegt að skera niður þjónustuna. Ég vona að hæstv. heilbrigðisráðherra Svandís Svavarsdóttir standi við fögur fyrirheit, að hugsa um Ísland allt.