148. löggjafarþing — 6. fundur,  21. des. 2017.

störf þingsins.

[11:02]
Horfa

Ari Trausti Guðmundsson (Vg):

Herra forseti. Ég ætla að tala um mál málanna. Einna mikilvægast í stjórnarsamkomulaginu er kolefnishlutlaust Ísland 2040. Það er vegna alvarlegrar stöðu loftslagsmála og vegna þess að það er þverpólitískt að mestu leyti. Vinnan snýr að orkuöflun í samræmi við orkustefnu. Við erum að tala um betri nýtingu og nýjar virkjanir fyrst og fremst til ákveðinna verkefna. Þetta snýr að orkuflutningum, þ.e. bættum tengingum um land allt. Þetta snýr að orkuskiptum í samgöngum og skipaútgerð. Við erum að tala um rafvæðingu, um vetni, metan, metanól sem við getum framleitt í miklu magni og við erum að tala um lífdísil sem við getum sömuleiðis framleitt í miklu magni. Allt leiðir þetta til minni losunar gróðurhúsagasa.

Við sjáum ýmis fordæmi fyrir þessu. Það er jú þannig að útgerð fiskiskipa hefur farið á þann veg að losun þar hefur minnkað. Það er nýbúið að leggja fram áætlun til fimm ára um kolefnishlutleysi í sauðfjárrækt. Allt eru þetta fordæmi sem vekja góðar vonir. Og við erum að tala um aukna kolefnisbindingu, bæði með því að auka skógrækt, tvö- eða jafnvel fjórfalt. Við erum að tala um uppgræðslu auðna og rofins lands, endurheimt votlendis og síðast en ekki síst þá nýju tækni sem komin er sem er niðurdæling á koltvísýringi, sem getur hvort sem er verið frá jarðhitaorkuverum eða stóriðju. Ég ætla að leyfa mér úr ræðustól að hvetja stjórnarþingmenn og stjórnarandstöðuþingmenn til að raungera þessi stefnumið. Það er ekki mjög langur tími til stefnu en með því að standa saman um þau getum við náð þeim árangri. Ég þarf ekki að minna á í þágu hverra það væri.