148. löggjafarþing — 6. fundur,  21. des. 2017.

störf þingsins.

[11:06]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M):

Hæstv. forseti. Fjárlaganefnd hefur fundað stíft undanfarið og verður að segjast eins og er að við erum að inna af hendi vinnu á einni viku sem er unnin á allt að fjórum mánuðum. Það sér hver maður að þetta er engan veginn í anda laganna um opinber fjármál og vandaða fjármálagerð. En ég vil vekja athygli á því að í fjárlagafrumvarpinu er innspýting í heilbrigðiskerfið sem hefur verið kynnt rækilega af hálfu ríkisstjórnarinnar og það eru 8.555 milljónir sem eiga að fara aukalega í heilbrigðiskerfið. Þar af fer ekkert á landsbyggðina. Ekkert. Eins og komið hefur hér fram.

Við í nefndinni fengum heimsókn frá heilbrigðisstofnunum úti á landinu. Þetta voru fimm forstöðumenn og þeir voru afar óánægðir með sinn hlut, skiljanlega. Íbúar á landsbyggðinni eiga rétt á heilbrigðisþjónustu eins og þeir sem eru á höfuðborgarsvæðinu.

Ég vil líka vekja athygli á einu máli sem kom fram hjá þessum forstöðumönnum, afar athyglisverðu máli. Þeir sögðu okkur að þeir þyrftu náttúrlega að vera í góðu sambandi við embættismenn heilbrigðisráðuneytisins. Þeim samskiptum er þannig háttað að það er engu svarað. Embættismenn svara engum erindum forstöðumanna. Þetta er með ólíkindum. Ef erindum er svarað tekur það allt upp í hálft ár. Ég segi bara: Ef embættismenn heilbrigðisráðuneytisins geta ekki sinnt sínu starfi sómasamlega eiga þeir að leita sér að vinnu annars staðar. Það er fullt af hæfu fólki sem er tilbúið til að sinna þessum störfum. Ég hvet þig, ágæti hæstv. heilbrigðisráðherra, til að taka á þessu máli.