aðgerðir í húsnæðismálum.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Þorsteini Víglundssyni fyrir að setja þessa umræðu á dagskrá. Ég held að fyrir okkur sem hér erum sé mikilvægt að allir hafi það á hreinu að um framboðsvandamál er að ræða, þannig að allar aðgerðir sem gengið verður til þurfa að miða að því að ýta undir það að framboð aukist, hvort sem það er með auknu lóðaframboði, einfaldara regluverki, til að mynda með enn frekari aðlögun byggingarreglugerðar, eða hverjar sem þær lausnir kunna að vera. Ef fjármunum er sífellt ýtt í átt að hækkun vaxtabóta, sem virðist vera svar margra við þeim vandamálum sem uppi eru á þessum markaði, þá hefur það, því miður, fyrst og fremst þau áhrif að halda áfram að keyra upp verð, sem keyrist upp nógu hratt vegna þeirra skortsvandamála sem við eigum við að glíma í dag. Ég vil bara brýna hæstv. ráðherra og þingmenn til að hafa það í huga að ráðast að réttum enda vandamálsins, því að mér finnst umræðan oft benda til þess að menn átti sig ekki á því úr hvaða átt vandamálið kemur.
Síðan kom skemmtilega á óvart — þó að hv. þm. Logi Einarsson sé farinn úr salnum er hann velkominn í heimsókn til okkar Miðflokksmanna hvenær sem er þar sem við getum farið yfir útfærðar tillögur um hvernig við náum niður vaxtastigi hér í landi með krónu. En eins og ég held að allir gerir sér grein fyrir snýst húsnæðismarkaðurinn, sennilega markaða mest, um vaxtastig, bæði á framkvæmdatíma, fyrir þá verktaka sem standa í þessum slag, og síðan á öllum líftíma niðurgreiðsluferlis húsnæðiskaupa almennings og fyrirtækja. Þetta snýst allt um vexti og við verðum að ná þeim niður.