aðgerðir í húsnæðismálum.
Herra forseti. Ég vil hefja mál mitt á að þakka hv. málshefjanda fyrir að taka upp þetta mikilvæga og brýna mál. Það er þannig að minni hyggju að ekki er hægt að fjalla um þennan málaflokk öðruvísi en að ræða fyrirkomulag á fjármögnun íbúðarhúsnæðis sem á sinn mikla hlut í háu húsnæðisverði og hárri húsaleigu. Við erum hér í okkar fagra landi ein og sér á báti með heimatilbúið kerfi, verðtrygginguna sem er óþekkt í okkar heimshluta þó að Seðlabankinn þykist hafa fundið einhver dæmi í Suður-Ameríku.
Það er eftirtektarvert að Norðmenn, sem fylgjast náttúrlega gjörla með málum á Íslandi, þar á meðal öllum tilburðum til fjármálasnilli sem eru hafðir uppi, eins og að finna upp verðtryggingu, hafa ekki talið ástæðu til að taka upp þetta fyrirkomulag hjá sér þrátt fyrir það að norska krónan, olíumyntin sú, sveiflist um tugi prósenta ef svo ber undir vegna sveiflna í olíuverði á alþjóðlegum markaði.
Þetta kerfi verðtryggingar er ekki nógsamlega rætt á hinu háa Alþingi. Á þessum stutta tíma sem hér er er ekki hægt að fara ítarlega, svo sem vert væri, í þetta en maður hlýtur þó að benda á að þetta verðtryggingarkerfi leggur svo víðtækar skuldbindingar á herðar lántökum að það stappar nærri að þeir séu sviptir fjárhagslegu forræði sínu á lánstímanum.
Ef við tökum eitt lítið dæmi — sem ég hef ekki tíma til að gera en ég mun ræða þetta nánar í seinni ræðu minni.