148. löggjafarþing — 6. fundur,  21. des. 2017.

aðgerðir í húsnæðismálum.

[11:50]
Horfa

Þorsteinn Víglundsson (V):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svörin. Ég skal játa að að mörgu leyti er ég ekkert miklu nær um stefnu stjórnarinnar því að stór hluti svaranna var í sjálfu sér bara þulinn upp úr stjórnarsáttmála sem mér finnst afskaplega loðinn og óskýr, en ég gladdist þó yfir því að í nokkrum verkefnum vísaði hann til einmitt ágæts húsnæðissáttmála sem unninn var í tíð síðustu ríkisstjórnar. Ég hvet hann eindregið til að stela honum bara öllum, hann er ágætur og unninn í samráði við sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu, unninn í anda þess sem áður hafði verið gert og var vísað til af hálfu forvera míns á þeim tíma, Eyglóar Harðardóttur. Við þurfum ekki alltaf að vera að byrja upp á nýtt að greina og skoða og athuga og kanna, eins og kemur mjög oft fyrir í kafla um húsnæðismál í stjórnarsáttmálanum, reyndar eins og í honum öllum. Þessar greiningar liggja fyrir, heimildir Íbúðalánasjóðs til greiningar liggja fyrir og niðurstaða greininganna liggur fyrir. Það vantar húsnæði. Þetta er skortur. Við þurfum að huga að því hvernig við leysum hann.

Þar eru nokkur atriði sem skipta mestu máli. Ég saknaði þess að heyra ekki ráðherra tala um áform varðandi sölu ríkislóða til sveitarfélaga til að byggja upp. Ég held að það sé gríðarlega mikilvægt, þar er hægt að byggja sennilega eitthvað vel á þriðja þúsund íbúðir á höfuðborgarsvæðinu, bara á þeim reitum. Það gæti eitt og sér hjálpað verulega.

Annað sem er líka mjög mikilvægt er endurskoðun og einföldun á regluverki. Það er íþyngjandi, það er mjög kostnaðarsamt fyrir byggingarmarkaðinn að verið er að leggja of mikið af sértækum gjöldum á nýjar íbúðir sem endurspeglast bara í hærra fasteignaverði. Og skipulagsferlið er líka allt of tímafrekt, sérstaklega þegar við erum komin út í mjög mikilvæga þéttingu á höfuðborgarsvæðinu en hún krefst einfaldara regluverks, einfaldara skipulags til að verkefnið geti gengið hraðar upp. Það er reyndar sérstaklega áhugavert í því samhengi hversu tregt umhverfisráðuneytið hefur verið í þessum efnum. Ég hvet hæstv. ráðherra eindregið til dáða í baráttu sinni við ráðuneytið (Forseti hringir.) um einföldun regluverks og einmitt að draga úr þeim kostnaði sem þar hefur verið varpað yfir á fasteignamarkaðinn á undanförnum árum.