148. löggjafarþing — 6. fundur,  21. des. 2017.

aðgerðir í húsnæðismálum.

[11:52]
Horfa

félags- og jafnréttismálaráðherra (Ásmundur Einar Daðason) (F):

Virðulegi forseti. Ég vil enn á ný þakka fyrir þessa umræðu. Ég held að það endurspeglist vel í umræðunni og hefur komið fram í máli nokkurra þingmanna að það er mjög mikilvægt að taka húsnæðismálin reglulega til umræðu í þinginu. Þetta er einn stærsti útgjaldaliður heimilanna í landinu og eins og fram hefur komið allt of stór liður hjá stórum hluta heimila þannig að það er mjög mikilvægt að þessi umræða sé alltaf lifandi.

Í fimm mínútna framsöguræðu er erfitt að fara mjög djúpt í húsnæðismálin almennt. Eins og fram hefur komið er vandinn ólíkur á höfuðborgarsvæðinu og landsbyggðinni. Ég kom inn á í minni ræðu ákveðnar aðgerðir sem við þurfum að grípa til gagnvart landsbyggðinni og gagnvart höfuðborgarsvæðinu og það eru aðrar leiðir. Hér hefur líka verið komið inn á, sem væri efni í heila umræðu, vexti og verðtryggingu og hvort við getum ekki náð niður vaxtastigi og afnumið verðtryggingu án þess að ganga í Evrópusambandið. Um það eru auðvitað skiptar skoðanir í þessum sal og ég segi bara eins og er að það er vel mögulegt. Það er hluti af því sem er í stefnu núverandi ríkisstjórnar.

Það hefur líka komið fram mikilvægi þess að byggja hagkvæmt húsnæði og að þar sé bæði horft til umhverfisþátta og að það þurfi að ráðast í einföldun regluverks. Á undanförnum árum höfum við endurskoðað það og ég held að byggingarreglugerðin sé sú reglugerð sem hefur langoftast verið endurskoðuð með tilliti til einfaldleika. Það þarf að halda áfram á þeirri braut en gæta þó að mikilvægum þáttum sem þurfa að vera tryggðir.

Hér hefur verið komið inn á úthlutun stofnframlaga og þær breytingar sem urðu á Íbúðalánasjóði undir forystu þáverandi hæstv. ráðherra, Eyglóar Harðardóttur. Varðandi stofnframlögin og Íbúðalánasjóð hefur það þó sýnt sig að það er að virka vegna þess að við erum að tala um það hér að setja þurfi aukið fjármagn inn í það kerfi sem þar var byggt upp. Það er ánægjuefni að finna að menn eru sammála hvað það snertir.

Síðan eru margir aðrir þættir sem við eigum vissulega að skoða með jákvæðum huga eins og áform um sölu ríkislóða o.fl.

Ég vil ítreka að það er mikilvægt að halda þessari umræðu lifandi og ég hvet hvort sem er hv. þm. Þorstein Víglundsson eða aðra til að taka þessa umræðu upp reglulega á nokkurra mánaða fresti. (Forseti hringir.) Þetta er mikilvægt og við eigum að ræða þetta og hugmyndirnar sem komu hér fram eru jákvæðar og ég tek þær með mér inn í vinnuna í ráðuneytinu.