148. löggjafarþing — 6. fundur,  21. des. 2017.

kyrrsetning, lögbann o.fl.

63. mál
[12:22]
Horfa

Rósa Björk Brynjólfsdóttir (Vg):

Virðulegi forseti. Ég óska flutningsmanni þessa frumvarps, Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur, til hamingju með það. Ég tek undir frumvarpið og tilgang þess, enda er hann sá að tryggja að ekki verði möguleiki fyrir gerðarbeiðanda lögbanns að stöðva miðlun fjölmiðils á efni án aðkomu dómstóla. Samkvæmt frumvarpinu munu gerðarbeiðendur í slíkum málum þurfa að höfða mál á hendur þeim sem þeir telja að hafi brotið eða muni brjóta gegn lögvörðum rétti þeirra með athöfnum sínum. Það er vel og þarf að sjálfsögðu ekki að fjölyrða hér í ræðustól Alþingis um að frelsi fjölmiðla er einn grundavallarþáttur hvers lýðræðisríkis, það er frelsi sem við þurfum að vernda með öllum ráðum.

Frelsi fjölmiðla er ekki síst nauðsynleg vörn geng spillingu. Því fagna ég að þetta frumvarp sé komið fram. Við vitum öll hvert tilefni frumvarpsins er. Í þessu máli, lögbanni á Stundina, voru hagsmunir almennings, sem skipta meginmáli þegar kemur að frelsi fjölmiðla, ekki varðir. Mér sýnist á öllu að frumvarpið sé mikilvægur liður í því að verja hagsmuni almennings, sem eru jú þeir hagsmunir sem við á Alþingi eigum að standa vörð um. Almenningur á rétt á upplýsingum um viðskiptahætti og viðskiptahagsmuni. Í því máli átti þáverandi forsætisráðherra landsins vissulega viðskiptahagsmuna að gæta í tengslum við fall íslenska bankakerfisins árið 2008, á meðan hann sjálfur var fulltrúi almennings. Honum bar því skylda til þess að gæta hagsmuna almennings og setja þá ofar eigin hagsmunum.

Það bendir ekkert til þess að Stundin sem fjölmiðill hafi haft í hyggju að birta aðrar upplýsingar úr þeim gögnum en þær sem vörðuðu hagsmuni almennings. Það frumvarp sem hér er komið fram er mikilvægt skref í því að standa vörð um frelsi fjölmiðla. Því mun ég styðja framgang þess.