fjáraukalög 2017.
Herra forseti. Hæstv. ráðherra fór yfir það í upphafi ræðu sinnar hvernig ætti að vinna fjáraukalagafrumvarp og las upp úr 26. gr. laga um opinber fjármál þar sem stendur að frumvarpið til fjáraukalaga eigi að „bregðast við tímabundnum, ófyrirséðum og óhjákvæmilegum útgjöldum innan fjárlagaársins, enda hafi ekki verið unnt að bregðast við þeim með úrræðum sem tilgreind eru í lögum“, þ.e. lögum um opinber fjármál.
Þegar við vorum að setja þetta niður var það einmitt til þess að reyna að ýta á það að stjórnvöld væru með vandaðri áætlanagerð. En þegar maður horfir á málin sem eru þarna undir spyr maður sig, og ég vil spyrja hæstv. ráðherra: Er það í rauninni svo að öll þessi atriði falli undir það sem tilgreint er í 26. gr. laga um opinber fjármál? Hvað með samning milli ríkis og kirkju? Það er ekki gamall samningur. Hvað með bryggjuna á Flateyri og þá aðrar bryggjur? Hvað með (Forseti hringir.) fleiri svona lítil mál sem ég hefði haldið að væru fjárlagamál? (Forseti hringir.) Nú má vera að þau séu algjörlega ófyrirséð og óhjákvæmileg útgjöld innan ársins.