fjáraukalög 2017.
Virðulegi forseti. Það er einmitt mergur málsins. Hvort eru þetta lausatök í rekstri ríkissjóðs eða í áætlanagerðinni? Eins og ég er alltaf að nefna erum við að verulegu leyti að gera áætlun um það hvað lögboðin útgjöld muni kosta okkur í fjárlagavinnunni fyrir næsta ár. Ég held að það megi segja með þessa milljarða vegna hælisleitenda að það sé ekki nægilega góð áætlanagerð. Ég held að það megi segja varðandi almannatryggingar að þar hafi áætlanagerðin ekki staðist. Ég spyr mig með lyfin. Mér sýnist við komin í einhvern vítahring með þau. Við setjum okkur markmið og við áætlum einhvern kostnað vegna lyfja en í hvert sinn sem lyfjaskortur kemur upp eða áhugi á að taka upp ný lyf er engin fyrirstaða þrátt fyrir að það sé langt út fyrir ramma yfirstandandi árs.
Ég vek athygli á að frá því að við stóðum hér fyrir ári síðan þar til við horfum á tölurnar fyrir næsta ár hafa tölurnar fyrir lyf og lækningavörur farið upp um 6 milljarða. Við vorum fyrir ári síðan að áætla kostnað vegna 2017 og nú horfum við á 2018. Útgjöld fyrir 2018 eru 6 milljörðum hærri en við töldum að 2017 yrði. Þetta eru gríðarlegar fjárhæðir. Þær munu fylgja okkur inn í framtíðina á hverju ári og fara vaxandi.
Ég ætla síðan að segja varðandi yfirlýsinguna með Reykjavíkurborg að það er ekki verið að afhenda ríkinu nýjar lóðir sem það ætlar að fara að ráðstafa með einhverjum hætti í tengslum við flugvöllinn heldur snýst allt samkomulagið um að koma undir íbúabyggð(Forseti hringir.) löndum og lóðum sem ríkið hefur í sinni umsjá.