148. löggjafarþing — 6. fundur,  21. des. 2017.

fjáraukalög 2017.

66. mál
[14:59]
Horfa

Ágúst Ólafur Ágústsson (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Hæstv. ráðherra veltir fyrir sér hvort þetta sé spurning um lausatök eða skort á góðri áætlanagerð eða hvernig að áætlanagerðinni er staðið. Hugsanlega er það hvort tveggja að mínu mati. Við höfum oft orðið vitni að lausatökum í ríkisfjármálunum. Svo sjáum við ítrekað skort á faglegri áætlanagerð. Ég held, hvoru sem um er að kenna, að það sé ljóst að þingið sem er með fjárveitingavaldið þarf að sinna með miklu öflugri hætti eftirlitsskyldu sinni gagnvart framkvæmdarvaldinu, ekki síst varðandi framkvæmd fjárlaga. Ég veit að ný fjárlaganefnd bindur vonir við að svo verði gert strax eftir áramót, að fjárlaganefnd og þingheimur allur verði miklu „próaktífari“ eða virkari við að fylgjast með framvindu fjárlaga og hvort um sé að ræða lausatök í ríkisrekstrinum. Við höfum ekkert efni á slíku. Þetta er ríkisrekstur sem samanstendur af skattpeningum borgaranna. Okkur ber skylda til að hér sé vel farið með þá fjármuni sem úr er að spila.

Svo langar mig líka að benda á að oft fáum við stofnanir inn á fund þingnefnda sem benda á ákveðna þörf. Þetta á ekki síst við á sviði heilbrigðismála. Þetta eru ríkisstofnanir sem segja: Það stefnir í þessa þörf miðað við þá lagalegu skyldu sem þið setjið á okkur. Við þurfum að sinna þessari þjónustu samkvæmt lögum sem þingið hefur ákveðið. Þessar stofnanir kalla eftir auknum fjármunum. Síðan ákveður meiri hlutinn, hver sem hann er hverju sinni, að verða ekki við þeirri ósk. Þá er ekki hægt að koma eftir á og segja að þetta hafi verið ófyrirséð vöntun á fjármagni. Hún var mjög fyrirséð. Viðkomandi stofnun var búin að benda á að þörfin yrði svona, þróunin yrði svona í fjölda sjúklinga og öryrkja o.s.frv. Meiri hlutinn getur ekki ýtt ábyrgðinni frá sér og sagt: Jú, við skulum leysa þetta með fjáraukalögum. Fjáraukalög eiga eingöngu við um þau útgjöld sem eru ófyrirséð. Þegar við fáum fyrir fram að vita að þörfin sé fyrir hendi er það ekki ófyrirséð útgjöld.