fjáraukalög 2017.
Frú forseti. Ég þakka fyrir þessar athugasemdir. Þetta síðasta sem kom fram í máli hæstv. ráðherra er í rauninni tilefni í miklu dýpri umræður um eðli gjaldeyrisvaraforða og tilgang hans. Mér þætti áhugavert að reyna að eiga það samtal einhvern tímann kannski í sérstökum umræðum eða þess háttar vegna þess að það má alveg spyrja um tilgang stórs gjaldeyrisvaraforða og ekki síst kannski í ljósi þess að það heyrðist frá Seðlabankanum fyrir ekki mörgum mánuðum að núna væri verið að draga úr áherslunni á að byggja upp stóra gjaldeyrisvaraforðann. Þetta vekur eiginlega margar nýjar spurningar hjá mér en ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin.